Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

750 Stekkholt 10 - Umsókn um lóð

Mál 2009170 Fyrst á dagskrá 5. október 2020, síðast 15. október 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Lóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 271 liður 19

    Lögð fram lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar, dagsett 18. september 2020, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 10 á Fáskrúðsfirði undir parhús sem sambyggt yrði húsi á lóðinni við Stekkholt 8.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Nefndin samþykkir jafnframt að óveruleg breyting verði gerð á deiliskipulagi svo gert verði ráð fyrir parhúsi á lóðunum.

  2. Bæjarráð, fundur 683 liður 9

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar og Grétars Helga Geirssonar, dagsettri 18. september 2020, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 10 á Fáskrúðsfirði undir parhús sem sambyggt yrði húsi á lóðinni við Stekkholt 8.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur auk þess samþykkt að gerð sé óveruleg breyting á deiliskipulagi þannig að gert verði ráð fyrir parhúsi á lóðunum.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  3. Bæjarráð, fundur 683 liður 14.19

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 271“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 299 liður 3.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 683“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 299 liður 4.19

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 271“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is