Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 684

19. október 2020, kl. 08:30 til 12:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 300 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Sigurður Ólafsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 19. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2020 - trúnaðarmál

    Mál 2004074 Allur ferill málsins

    Framlagt yfirlit frá fjármálastjóra um rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - ágúst og launakostnað og skatttekjur janúar - september 2020. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024

    Mál 2005017 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2021. Unnið verður áfram við gerð áætlunarinnar.

  3. 3. Lántaka 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga

    Mál 2001114 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri fór yfir lántöku ársins 2020 auk mögulega skuldbreytingu á lánum við Lánasjóð sveitarfélaga.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að leita eftir fjármögnun að fjárhæð 700 m.kr. hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna uppgreiðslu fimm tilgreindra lána að fjárhæð 662 m.kr.. Jafnframt að leita tilboða fjármögnunar vegna samþykktar í viðauka fjárhagsáætlunar 2020 að fjárhæð 500 m.kr. auk skoðunar á framtíðarlántöku.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021

    Mál 2005022 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar til umfjöllunar bæjarráðs. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2021.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2021

    Mál 2005021 Allur ferill málsins

    Vísað frá barnaverndarnefnd til bæjarráðs fjárhagsáætlun málaflokksins til umfjöllunar. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2021.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021

    Mál 2005019 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til bæjarráðs fjárhagsáætlun menningarmálaflokks til umfjöllunar. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2021.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021

    Mál 2005018 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til bæjarráðs innra vinnuskjal sviðsstjóra framkvæmdasviðs um fyrirhugaðar fjárfestingar og þær framkvæmdir sem unnið hefur verið að á árinu ásamt yfirliti yfir fjárfestingarverkefni.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2021. Jafnframt mun bæjarráð taka umfjöllun um forgangsröðun og fyrirkomulag einstakra framkvæmda á næstu fundum.

  8. 8. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021

    Mál 2005025 Allur ferill málsins

    Farið yfir rekstur málaflokksins sameiginlegur kostnaður og málaflokka sem heyra undir bæjarráð. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2021.

  9. 9. Samþykkt um breytingu á samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar október 2020

    Mál 2010103 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að breytingu á samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar þar sem safnanefnd hefur verið lögð niður og hlutverk hennar falið menningar- og nýsköpunarnefnd.

    Bæjarráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  10. 10. Erindisbréf menningar- og nýsköpunarnefndar - endurskoðað 2020

    Mál 2010102 Allur ferill málsins

    Framlagt breytingar á erindisbréfi menningar- og nýsköpunarnefndar vegna niðurlagningar safnanefndar.

    Bæjarráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  11. 11. Vatnstjón á Eyrarstíg 1

    Mál 1801118 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu málsins.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindi eiganda Eyrarstígs 1 í samráði við lögmann sveitarfélagsins.

  12. 12. Seley - nytjaréttur af æðarvarpi

    Mál 2004064 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd minnisblaði sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um leigu æðarvarps í Seley en nefndin leggur til að leiga varpsins verði boðin út. Bæjarráð samþykkir að æðarvarp í Seley verði boðið út.

  13. 13. Snjómokstur í Fjarðabyggð

    Mál 2006083 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs fyrirkomulagi snjómoksturs. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur staðfest áður samþykktar verklagsreglur. Nefndin samþykkir jafnframt tillögu framkvæmdasviðs að breytingu á þjónustuflokkum í snjómokstri gatna á Norðfirði, Eskifirði og á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir þjónustuflokkun og verklagsreglur að teknu tilliti til athugasemda sem komu fram á fundi og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.

  14. 14. Dalborg, hönnun á viðbyggingu

    Mál 2002039 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, minnisblaði starfshóps um viðbyggingu við Leikskólann Dalborg Eskifirði.

    Bæjarráð hefur vísað minnisblaði til fjárhagsáætlunargerðar og mun jafnframt taka umræðu um forsendur viðbyggingarinnar.

  15. 15. Aukafjárveiting til bókasafna í Fjarðabyggð 2020

    Mál 2010077 Allur ferill málsins

    Beiðni bókasafnanna í Fjarðabyggð um 360.000 kr. aukafjárveitingu til kaupa á nýjum bókum á árinu 2020.

    Bæjarráð samþykkir að veita viðbótarfjármagni af liðnum óráðstafað 21 690 til bókasafna sbr. beiðni.

  16. 16. Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. á árinu 2020

    Mál 2006114 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til afgreiðslu bæjarráðs breytingum á stofnsamningi byggðasamlagsins.

    Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til skoðunar.

  17. 17. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2020

    Mál 2004049 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 3. fundar stjórnar Náttúrustofu Austurlands á árinu 2020.

  18. 18. Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 29.október

    Mál 2010105 Allur ferill málsins

    Boðað er til aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í fjarfundi 29. október 2020, kl. 13:00.

    Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  19. 19. 15.mál til umsagnar frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála, 15. mál

    Mál 2010107 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis þar sem til umsagnar er frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála, 15. mál.

    Bæjarráð vísar frumvarpi til skoðunar hjá sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

  20. 20. 21.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði (breytt kynskráning),

    Mál 2010108 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis til umsagnar er frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði (breytt kynskráning), 21. mál.

    Bæjarráð vísar frumvarpi til skoðunar hjá sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

  21. 21. Þórsskúr á Neseyri - afsal

    Mál 2010013 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá Kajakklúbbnum Kaj þar sem óskað er eftir að Þórsskúr á Neseyri verði afsalað til klúbbsins en Kajakklúbburinn hefur haft hann til afnota vegna starfsemi sinnar um árabil og fékk honum afsalað þegar átti að rífa hann vegna byggingar nýs leikskóla á Neseyri.

    Bæjarráð samþykkir að Þórskúrnum verði afsalað til Kajakklúbbsins og felur bæjarstjóra að ganga frá og undirrita skjöl vegna sölu eignarinnar.

  22. 22. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 272

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 272 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 22.1 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20212009117
    2. 22.2 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20212009130
    3. 22.3 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
  23. 23. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 273

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 273 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 23.1 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20212005018
    2. 23.2 Dalborg, hönnun á viðbyggingu2002039
    3. 23.3 Snjómokstur í Fjarðabyggð2006083
    4. 23.4 Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði2004112
    5. 23.5 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
    6. 23.6 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður2009211
    7. 23.7 750 Hafnargata - Umsókn um svæði fyrir skemmu2010089
    8. 23.8 760 Skjöldólfsstaðir - Umsókn um framkvæmdarleyfi, skógrækt2002078
    9. 23.9 Seley - nytjaréttur af æðarvarpi2004064
    10. 23.10 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 20202004049
    11. 23.11 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20202002144
    12. 23.12 730 Hraun 1 - Óverleg breyting á deiliskipulagi, fjölgun lóða2009105
    13. 23.13 Svæðisskipulag fyrir Austurland1602151
    14. 23.14 730 Hrútá - Umsókn um framkvæmdaleyfi, stálplöturæsi2010088
  24. 24. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 32

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 32 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 24.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20212005019
    2. 24.2 Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. á árinu 20202006114
    3. 24.3 Aðsókn að söfnum 2019 - 20202010061
    4. 24.4 Ljósmyndasamkeppni 20202010071
    5. 24.5 Umsóknir Uppbyggingarsjóður 20202010068
    6. 24.6 Umsóknir áfangastaða 20202010037
    7. 24.7 Verkefni menningarstofu 20202001116
    8. 24.8 Frábær smábær2010031
    9. 24.9 Erindisbréf safnanefndar1806133
  25. 25. Íþrótta- og tómstundanefnd - 80

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 80 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 25.1 Úttekt á skipulagi og rekstri 06 Íþrótta- og æskulýðsmála
    2. 25.2 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
  26. 26. Félagsmálanefnd - 138

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 138 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 26.1 Leikskólamál2009173
    2. 26.2 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20212005022
    3. 26.3 Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 20212009001
    4. 26.4 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 202010011F
  27. 27. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 20

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna nr. 20 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 27.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2021
    2. 27.2 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
  28. 28. Barnaverndarfundargerðir 2020

    Mál 2003129 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 122 lögð fram til afgreiðslu.