Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

760 Skjöldólfsstaðir - Umsókn um framkvæmdarleyfi, skógrækt

Mál 2002078 Fyrst á dagskrá 16. október 2020, síðast 5. nóvember 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 273 liður 8

    Lagt fram bréf Sigurðar Max Jónssonar og Örnu Silju Jóhannsdóttur eiganda Skjöldólfsstaða í Breiðdal þar sem óskað er leyfis til ræktunar 36 ha nytjaskógar á jörðinni. Fornleifaskráning og umsögn Minjastofnunar Íslands liggur fyrir. Fyrirhuguð skógrækt fellur undir flokk C í 1. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að ekki sé um matsskylda framkvæmd að ræða og gerir ekki athugasemdir við að 36 ha skógrækt hefjist í landi Skjöldólfsstaða.

  2. Bæjarráð, fundur 684 liður 23.8

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 273“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 300 liður 6.8

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 273“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is