Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 32

12. október 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Magnea María Jónudóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður
  • Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 684 liður 24

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 32 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 300 liður 10

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 12. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021

    Mál 2005019 Allur ferill málsins

    Lokafrágangur fjárhagsáætlunar 2021. Fjárhagsáætlun 2021 til menningar- og nýsköpunarmála er innan úthlutaðs fjárhagsramma. Umræða um áherslur í málaflokknum. Lögð fram minnisblöð er varða fjárhagsáætlun menningarmála 2021 og verkefni menningarstofu og tónlistarmiðstöðvar. Einnig lagt fram yfirlit yfir möguleg styrkhæf verkefni með ósk um afstöðu nefndarinnar til forgangsröðunar þeirra. Samkvæmt fjárhagsramma menningarmála er rekstrarniðurstaða málaflokksins áætluð 272,9 milljónir sem er um 13,4 milljóna hækkun frá fyrra ári. Sérstakt viðbótarframlag til áætlunarinnar nam kr. 5,7 milljónum. Formaður menningar- og nýsköpunarnefndar hefur mætt á fund bæjarráðs og farið yfir áherslur nefndarinnar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir framlagðar tillögur vegna fjárhagsáætlunar 2021, eins og þær eru settar fram í minnisblöðum.

  2. 2. Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. á árinu 2020

    Mál 2006114 Allur ferill málsins

    Upplýsingar frá Héraðsskjalasafni Austfirðinga um breytingar á stofnsamningi byggðasamlagsins. Leiðréttingar hafa verið gerðar á atkvæðavægi aðalfundarfulltrúa eftir ábendingar frá Fjarðabyggð. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir breytingar á stofnsamningi fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.

  3. 3. Aðsókn að söfnum 2019 - 2020

    Mál 2010061 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað forstöðumanns Safnastofnunar um aðsókn á söfnin í Fjarðabyggð 2019 - 2020. Vegna Covid-19 varð mikil fækkun erlendra ferðamanna á söfnunum á árinu 2020, en íslenskum gestum fjölgaði mikið. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir að samantektin verði notuð til áframhaldandi vinnu við rýni á ferðamál.

  4. 4. Ljósmyndasamkeppni 2020

    Mál 2010071 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa um Ljósmyndasamkeppni Fjarðabyggðar 2020 - Fjarðabyggð með mínum augum. Verkefnið kom til sem hluti af viðbrögðum við COVID 19 og var hugsað sem hvatning til íbúa og gesta Fjarðabyggðar til að njóta alls þess fallega sem Fjarðabyggð hefur upp á að bjóða. Þátttaka var góð og yfir 200 myndir bárust í keppnina. Gert er ráð fyrir að niðurstaða dómnefndar liggi fyrir í nóvember.

  5. 5. Umsóknir Uppbyggingarsjóður 2020

    Mál 2010068 Allur ferill málsins

    Atvinnu- og þróunarstjóri kynnti verkefni sem verið er að vinna með að sæki um í Uppbyggingarsjóð Austurlands.

  6. 6. Umsóknir áfangastaða 2020

    Mál 2010037 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um stöðu umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða í Fjarðabyggð fyrir árið 2020. Atvinnu- og þróunarstjóri kynnti stöðu verkefna Fjarðabyggðar hjá sjóðnum. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna málið áfram samkvæmt tillögum í minnisblaði, svo hægt sé að leggja fram lokskýrslur eldri verkefna.

  7. 7. Verkefni menningarstofu 2020

    Mál 2001116 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður menningarstofu gerði grein fyrir helstu verkefnum á næstunni og stöðu mála vegna Covid-19 en nokkuð er um að viðburðum hafi verið frestað. Menningarstofa vinnur að umsóknum í Uppbyggingarsjóð og aðkomu að samstarfsverkefnum á komandi ári.

  8. 8. Frábær smábær

    Mál 2010031 Allur ferill málsins

    Fjarðabyggð hefur veitt jákvæða umsögn í tengslum við verkefnið "Hjallurinn okkar", sem er hluti af heildarverkefninu - Frábær smábær. Lagt fram til kynningar.

  9. 9. Erindisbréf safnanefndar

    Mál 1806133 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til upplýsinga fyrirhugaðar breytingar á erindisbréfi menningar- og nýsköpunarnefndar vegna niðurlagningar safnanefndar.