NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 33
16. nóvember 2020, kl. 16:00 til 17:05, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Magnea María Jónudóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 689 liður 10
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 33 lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 16. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni menningarstofu 2021
Mál 2009060 Allur ferill málsins
Samantekt forstöðumanns menningarstofu yfir verkefni sem fengu styrk fyrr á árinu. Óskað er eftir heimild nefndarinnar til að færa styrki yfir á árið 2021 án þess að styrkir ársins skerðist. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að styrkir verði færðir milli ára og vísar erindinu til fjármálastjóra með beiðni um að fjármagn samkvæmt samantekt verði fært milli ára.
-
2. Sýningarvél í Egilsbúð
Mál 2011091 Allur ferill málsins
Erindi um verndun og geymslu Bauer B11 sýningarvélar ásamt fylgihlutum, sem staðsettir eru í Egilsbúð. Forstöðumanni safnastofnunar falið að fara yfir málið með ásættanlega lausn í huga og leggja tillögu fyrir nefndina á næsta fundi.
-
3. Heimildamynd um Eistnaflug
Mál 2011092 Allur ferill málsins
Árið 2014 kom út heimildarmynd um Eistnaflug sem ber nafnið "Bannað að vera fáviti". Myndin fór í sýningu hjá Ríkissjónvarpinu ásamt því að gefin var út vegleg DVD útgáfa sem innihélt fjóra DVD diska með níu klst. af afþreyingarefni um hátíðina, um níutíu lög, viðtöl við stofnendur hátíðarinnar, heimamenn og hljómsveitarmeðlimi. Óskað er eftir liðsinni frá menningar og nýsköpunarnefnd til að leita eftir styrkjum til að koma myndinni í sýningu á miðlum erlendis og á samfélagsmiðlum. Forstöðumanni menningarstofu falið að yfirfara málið með útgefanda myndarinnar og leggja minnisblað fyrir nefndina á næsta fundi.
-
4. Skýrsla um ferðasumarið 2020
Mál 2010179 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar skýrsla upplýsinga- og kynningarfulltrúa um ferðasumarið 2020 í Fjarðabyggð.
-
5. Markaðsátak og sýnileiki 2020
Mál 2005044 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa er varðar uppgjör á markaðsátaki Fjarðabyggðar sumarið 2020.
-
6. Markaðsátak vegna páska 2021
Mál 2011090 Allur ferill málsins
Umræða um verkefni varðandi fyrirhugað markaðsátak fyrir páska 2021. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur upplýsingafulltrúa og forstöðumanni Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði ásamt fulltrúa frá Austurbrú, að setja af stað verkefni í tengslum við viðburði um páska 2021.
-
7. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2020
Mál 2011096 Allur ferill málsins
Lagt fram til upplýsinga minnisblað forstöðumanns safnastofnunar um starfsemi safna sumarið 2020.
-
8. Málþing um súðbyrðinginn
Mál 2009198 Allur ferill málsins
Umræða um málþing sem haldið verður 24. apríl 2021 í Fjarðabyggð.