Bæjarráð, fundur 689
23. nóvember 2020, kl. 08:30 til 11:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Sigurður Ólafsson.
Fundargerð bæjarráð frá 23. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
Mál 2005017 Allur ferill málsins
Umræða um áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar milli umræðna. Lögð fram samantekt um rekstur íþrótta- og tómstundamála.
Vísað til áframhaldandi vinnu fjárhagsáætlunar milli umræðna.
-
2. Rekstur málaflokka 2020
Mál 2004074 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál rekstraryfirlit málaflokka og framkvæmda fyrir janúar - september auk skatttekna og launakostnaðar fyrir janúar - október. Jafnframt lagt fram sundurliðað deildaryfirlit janúar - september.
-
3. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020
Mál 2001149 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2020 með tilliti til áætlana. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs.
Bæjarráð vísar minnisblaði til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og til fjármálastjóra til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2020.
-
4. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði
Mál 2004112 Allur ferill málsins
Yfirfarin kostnaðaráætlun vegna byggingar nýs íþróttahúss á Reyðarfirði. Lagt er til við bæjarráð að tilboði Vírnets í húsið verði tekið og jafnframt verði farið í útboð á sökklum og tengibyggingum.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Vírnets hf. og felur framkvæmdasviði að bjóða út sökkla og tengibyggingu. Tillögum vísað jafnframt til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.
-
5. Fyrirspurn vegna lóðar - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2011121 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir fyrirspurn sem borist hefur vegna lóðamála í sveitarfélaginu.
-
6. Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði
Mál 2007105 Allur ferill málsins
Umsögn atvinnu- og þróunarstjóra er varðar fyrirhugaða breytinga á staðsetningu eldissvæða og útsetningaráætlun í Fáskrúðsfirði lögð fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur atvinnu- og þróunarstjóra að senda hana. Vísað til kynningar í hafnarstjórn og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
7. Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2021
Mál 2011128 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Brúar lífeyrissjóðs þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall árið 2021 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Neskaupstaðar í B-deild Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verði 72% á næsta ári.
Bæjarráð samþykkir tillögu lífeyrissjóðsins og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að endurgreiðsluhlutfall á árinu 2021 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar verði 72%.
-
8. 265.mál til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi (vannýttur lífmassi í fiskeldi),
Mál 2011122 Allur ferill málsins
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi (vannýttur lífmassi í fiskeldi), 265. mál. Umsögn berist eigi síðar en 2. desember.
Vísað til atvinnu- og þróunarstjóra og bæjarstjóra til skoðunar.
-
9. Íþrótta- og tómstundanefnd - 81
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 81 lögð fram til afgreiðslu.
- 9.1 Íþrótta -og tómstundastyrkur ríkið
- 9.2 Íþrótta og tómstundastyrkir Fjarðabyggðar
- 9.3 Stefnumótun Íþrótta og tómstundasviðs
-
10. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 33
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 33 lögð fram til afgreiðslu.
- 10.1 Verkefni menningarstofu 20212009060
- 10.2 Sýningarvél í Egilsbúð2011091
- 10.3 Heimildamynd um Eistnaflug2011092
- 10.4 Skýrsla um ferðasumarið 20202010179
- 10.5 Markaðsátak og sýnileiki 20202005044
- 10.6 Markaðsátak vegna páska 20212011090
- 10.7 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20202011096
- 10.8 Málþing um súðbyrðinginn2009198