Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2021
Mál 2011128 Fyrst á dagskrá 23. nóvember 2020, síðast 3. desember 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 689 liður 7
Framlagt bréf Brúar lífeyrissjóðs þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall árið 2021 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Neskaupstaðar í B-deild Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verði 72% á næsta ári.
Bæjarráð samþykkir tillögu lífeyrissjóðsins og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að endurgreiðsluhlutfall á árinu 2021 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar verði 72%.
-
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 10
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að endurgreiðsluhlutfalli
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu Brúar lífeyrissjóðs um að endurgreiðsluhlutfall árið 2021 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Neskaupstaðar í B-deild Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga, verði 72% á næsta ári.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum að endurgreiðsluhlutfall árið 2021 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Neskaupstaðar B-deildar verði 72%.
-
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 2.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 689“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.