Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 302

3. desember 2020, kl. 16:00 til 17:20, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Sigurður Ólafsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024

    Mál 2005017 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri mælti fyrir breytingum á fjárhagsáætlun árin 2021 til 2024 milli umræðna og áætlun til síðari umræðu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögum að breytingum á fjárhagsáætlun milli umræðna ásamt endanlegri fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana árin 2021 til 2024 til síðari umræðu.

    Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2021 í milljónum kr.

    Rekstrarniðurstaða

    Samstæða A-hluta 40 m.kr.

    Samstæða B-hluta 337 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 377 m.kr.

    Fjárfestingar

    Samstæða A-hluta 644 m.kr.

    Samstæða B-hluta 491 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 1.135 m.kr.

    Afborganir langtímalána og leiguskuldbindinga

    Samstæða A-hluta 386 m.kr.

    Samstæða B-hluta 154 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 540 m.kr

    Skuldir og skuldbindingar A hluta verði 9,7 mi.kr. og samstæðunnar í heild 9,4 mi.kr. í árslok 2021.

    Eigið fé er áætlað að nemi 1,4 milljörðum króna í A hluta og 6,9 milljörðum króna í samstæðu í árslok 2021.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Rúnar Már Gunnarsson,

    Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

    Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð greiðir atkvæði gegn framlagðri fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021- 2024. Eins og fram hefur komið í fyrri bókunum flokksins þá er lagst gegn frekari skuldasöfnun sveitarfélagsins. Við teljum afar brýnt að snúið sé frá núverandi stefnu skuldasöfnunar og reksturinn verði sjálfbær að nýju þar sem jafnvægi sé á milli tekna og útgjalda sveitarfélagsins.

    Í fyrsta sinn í áraraðir er áætlað að skuldahlutfall A og B hluta Fjarðabyggðar hækki og fari úr rúmum 110% í rúm 118% á næsta ári. Þá er á áætlun fram til ársins 2023 að taka langtímalán fyrir tæpa 2 milljarða, þar af 700 milljónir til að endurfjármagna núverandi lán sem skapar aukið svigrúm í rekstri til ársins 2024. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir áframhaldandi skuldsetningu sem Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki unað við og greiðir því atkvæði gegn fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

    Bókun fulltrúa Fjarðalista og Framsóknarflokks

    Bæjarfulltrúar Fjarðalista og Framsóknarflokks lýsa yfir ánægju með fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2021 sem liggur fyrir til samþykktar og afgreiðslu við síðari umræðu í bæjarstjórn. Þrátt fyrir að ytri aðstæður í efnahagslífinu og áhrif Covid-19 hafi reynt á Fjarðabyggð, eins og önnur sveitarfélög hérlendis, hefur tekist að ná jafnvægi í rekstur A-hluta sveitarsjóðs fyrir næsta ár og snúa við væntum taprekstri sem stefndi í. Engu að síður bíður áframhaldandi vinna við tillögur og lausnir til hagkvæmari rekstrar í A-hluta sveitarsjóðs á næstu árum og þannig ná niður þörf á lántöku til fjárfestinga hans. Þetta er vinna sem farið verður í og þarf að vera kominn mynd á fyrir úthlutun ramma fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022. Samt er nauðsynlegt í þeirri vinnu að hafa að leiðarljósi hag íbúanna um leið og brugðist verði við hvatningu ríkisvaldsins, sem fjármálaráðherra hefur talað fyrir, um nauðsyn þess að opinberir aðilar dragi ekki saman seglin í þessu ástandi heldur framkvæmi og haldi fólki í vinnu.

    Bæjarstjórn staðfestir með 7 atkvæðum fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana árin 2021 til 2024. Ragnar Sigurðsson og Dýrunn Pála Skaftadóttir greiða atkvæði gegn fjárhagsáætlun.

  2. 2. Bæjarráð - 689

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Sigurður Ólafsson.

    Fundargerð bæjarráð frá 23. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 20242005017
    2. 2.2 Rekstur málaflokka 20202004074
    3. 2.3 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
    4. 2.4 Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði2004112
    5. 2.5 Fyrirspurn vegna lóðar - TRÚNAÐARMÁL2011121
    6. 2.6 Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði2007105
    7. 2.7 Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 20212011128
    8. 2.8 265.mál til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi (vannýttur lífmassi í fiskeldi),2011122
    9. 2.9 Íþrótta- og tómstundanefnd - 812011013F
    10. 2.10 Menningar- og nýsköpunarnefnd - 332011011F
  3. 3. Bæjarráð - 690

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 30. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 20242005017
    2. 3.2 Lántaka 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga2001114
    3. 3.3 Kröfur á hendur Jöfnunarsjóði2011202
    4. 3.4 Íbúðarhúsnæði í Fjarðabyggð2003158
    5. 3.5 Barnaskólinn á Eskifirði1810021
    6. 3.6 Starfshópur um sumaropnun leikskólanna2002082
    7. 3.7 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    8. 3.8 Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði2010204
    9. 3.9 Mannauðsmál 20202011205
    10. 3.10 311.mál til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, áhættumat, sektir o.fl.),2011189
    11. 3.11 323.mál til umsagnar frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof,2011190
    12. 3.12 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20202002033
    13. 3.13 Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 29.október2010105
    14. 3.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2762011015F
    15. 3.15 Hafnarstjórn - 2532011017F
    16. 3.16 Barnaverndarfundargerðir 20202003129
    17. 3.17 Stjórnkerfisnefnd2011203
  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 276

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 23. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    2. 4.2 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
    3. 4.3 Barnaskólinn á Eskifirði1810021
    4. 4.4 Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði2004112
    5. 4.5 Strandverðir Íslands2011057
    6. 4.6 Deiliskipulag Holtahverfis - óveruleg breyting, fækkun- og breyting lóða2011127
    7. 4.7 760 Hrauntún 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2010151
    8. 4.8 755 Skólabraut 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2009104
    9. 4.9 740 Melagata 1 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2011014
    10. 4.10 750 Hafnargata 27a - Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif2010197
    11. 4.11 730 Mánagata 3 - byggingarleyfi, nýb. á bílskúr, breyting úti og á lóð2006042
    12. 4.12 730 Hraun 13 - Umsókn byggingarleyfi, spennistöð2011084
    13. 4.13 735 Lambeyrarár- Framkvæmdaleyfi, ofanflóðavarnir2011071
    14. 4.14 Landsskipulagsstefna 2015-20261903130
    15. 4.15 Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði2007105
    16. 4.16 275.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis)2011120
    17. 4.17 Breytingar á mannvirkjalögum 17. mál 151. lþ.2011079
    18. 4.18 276.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (málsmeðferð o.fl.),2011118
  5. 5. Hafnarstjórn - 253

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 24. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    2. 5.2 Fundir með sjávarútvegsfyrirtækjum í Fjarðabyggð2011137
    3. 5.3 Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði2010204
    4. 5.4 Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði2007105
    5. 5.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20202001204
    6. 5.6 Hafnasambandsþing 20202007025
    7. 5.7 Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20202010125
    8. 5.8 Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/20032011077
    9. 5.9 Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 91911123
  6. 6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 81

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 18. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Íþrótta -og tómstundastyrkur ríkið
    2. 6.2 Íþrótta og tómstundastyrkir Fjarðabyggðar
    3. 6.3 Stefnumótun Íþrótta og tómstundasviðs
  7. 7. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 33

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 16. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Verkefni menningarstofu 20212009060
    2. 7.2 Sýningarvél í Egilsbúð2011091
    3. 7.3 Heimildamynd um Eistnaflug2011092
    4. 7.4 Skýrsla um ferðasumarið 20202010179
    5. 7.5 Markaðsátak og sýnileiki 20202005044
    6. 7.6 Markaðsátak vegna páska 20212011090
    7. 7.7 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20202011096
    8. 7.8 Málþing um súðbyrðinginn2009198
  8. 8. Barnaverndarfundargerðir 2020

    Mál 2003129 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 124 frá 26. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

  9. 9. Deiliskipulag Holtahverfis - óveruleg breyting, fækkun- og breyting lóða

    Mál 2011127 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags.

    Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir fækkun lóða og breytingum á lóðarmörkum. Tillagan var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur bara áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu um óverulega breytingu deiliskipulags Holtahverfis.

  10. 10. Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2021

    Mál 2011128 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að endurgreiðsluhlutfalli

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu Brúar lífeyrissjóðs um að endurgreiðsluhlutfall árið 2021 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Neskaupstaðar í B-deild Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga, verði 72% á næsta ári.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum að endurgreiðsluhlutfall árið 2021 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Neskaupstaðar B-deildar verði 72%.

  11. 11. Stjórnkerfisnefnd

    Mál 2011203 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri mælti fyrir málslið.

    Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn að stjórnkerfisnefnd taki til starfa til þess að fjalla um, endurskoða og koma með tillögur að breytingar á stjórnskipulagi, verði það niðurstaða bæjarráðs. Markmið með endurskoðuninni er að skoða hvort auka megi skilvirkni, hagkvæmni og framþróun í rekstri og starfsemi Fjarðabyggðar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillöguna.

  12. 12. Lántaka 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga

    Mál 2001114 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri mælti fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu um 500 m.kr. lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga sbr. viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun ársins 2021.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum hér með á bæjarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér.

    Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

    Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum sveitarfélagsins og endurfjármögnunar eldri lána sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

    Jafnframt er Jóni Birni Hákonarsyni, bæjarstjóra, kt. 270173-3149, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.