Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Strandverðir Íslands

Mál 2011057 Fyrst á dagskrá 23. nóvember 2020, síðast 3. desember 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 276 liður 5

    Lagður fram póstur Veraldarvina, dagsettur 4. nóvember 2020, þar sem óskað er eftir samstarfi við Fjarðabyggð um hreinsun strandlengju sveitarfélagsins ofl. gegn því að fasteignagjöld af húsnæði félagsins á Stöðvarfirði verði felld niður. Verkefnið yrði fjármagnað af aðgerðaráætlun umhverfisráðuneytisins ,Úr viðjum plastsins, og styrkjum frá fyrirtækjum heima og erlendis.´

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið en hefur ekki heimild til að fella niður fasteignagjöld. Erindinu er vísað til afgreiðslu hjá bæjarstjóra.

  2. Bæjarráð, fundur 690 liður 14.5

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 276“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 302 liður 4.5

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 276“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is