Bæjarráð, fundur 690
30. nóvember 2020, kl. 08:30 til 12:00, í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 30. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
Mál 2005017 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað fjármálastjóra um breytingar á fjárhagsáætlun 2021 til 2024 milli umræðna. Uppfærð drög að tillögu að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árin 2021 til 2024 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir breytingar á fjárhagsáætlun 2021 til 2024 og vísar henni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
2. Lántaka 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Mál 2001114 Allur ferill málsins
Lagður fram lánasamningur við Lánasjóð sveitarfélaga vegna lántöku að upphæð 500 m.kr. til kynningar.
Bæjarstjóra falið að undirrita samning vegna lánsins sbr. samþykkt bæjarstjórnar.
-
3. Kröfur á hendur Jöfnunarsjóði
Mál 2011202 Allur ferill málsins
Framlögð áskorun sveitarfélagsins Skagafjarðar er varðar kröfu Reykjavíkurborgar á hendur Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir með bókun byggðarráðs Skagafjarðar hvað varðar kröfu Reykjavíkurborgar á hendur Jöfnunarsjóði sveitarfélaga upp á 8,7 milljarða kr. vegna meintra vangoldinna framlaga úr sjóðnum. Bæjarráð Fjarðabyggðar hvetur borgarstjórn Reykjavíkur til að endurskoða áðurnefnda kröfu því nái hún fram að ganga þá mun Jöfnunarsjóðurinn þurfa að greiða kröfuna úr sínum sjóðum og þannig um leið þurfa að skerða framlög sín sem því nemur til sveitarfélaganna. Slíkt mun verða mörgum sveitarfélögum mikið áfall og verða til þess að allir tapa í þessu máli. Um leið og minnt er á yfirburðastöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar landsins gagnvart öðrum sveitarfélögum þá hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar borgaryfirvöld að leita annara leiða við ríkisvaldið til að ná fram þeim leiðréttingum sem þau telja sig eiga inni frekar en í gegnum málarekstur gagnvart Jöfnunarsjóðnum.
-
4. Íbúðarhúsnæði í Fjarðabyggð
Mál 2003158 Allur ferill málsins
Kynntar hugmyndir Hrafnhóls ehf. byggingaverktaka um byggingu íbúðarhúsnæðis í Fjarðabyggð.
Bæjarráði lýst vel á hugmyndir fyrirtækisins um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Fjarðabyggð og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að halda áfram viðræðum við fyrirtækið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
5. Barnaskólinn á Eskifirði
Mál 1810021 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tilboði frá MVA ehf. í byggingu stoðveggs við Gamla barnaskólann á Eskifirði. Lögð fram fundargerð fá Mannvit hf. vegna opnunar tilboða í stoðvegg við gamla Barnaskólann á Eskifirði frá 17. nóvember 2020. Eitt tilboð barst frá MVA uppá 9.912.250 kr. Jafnframt er afgreiðslu vegna fjármögnunar vísað til bæjarráðs þar sem viðauki vegna verksins upp á 6.0 m. kr. er á fjárhagsáætlun þessa árs.
Bæjarráð samþykkir að tilboði verði tekið og fjármögnun skoðuð þegar fyrir liggur endanlegur verktími.
-
6. Starfshópur um sumaropnun leikskólanna
Mál 2002082 Allur ferill málsins
Vísað frá starfshóp um sumaropnun leikskóla niðurstöðu ásamt rökstuðningi. Starfshópurinn leggur til við bæjarráð að óbreytt fyrirkomulag verði viðhaft á sumaropnun leikskóla í Fjarðabyggð, þ.e. hver skóli loki í 4 vikur eða 20 virka daga yfir sumarið og
sumarlokun skólanna nái yfir a.m.k. 2 mánaða tímabil.
Bæjarráð samþykkir tillögur starfshópsins og leggur áherslu á að góð kynning fari fram á lokun leikskólanna og tækifærum foreldra til að nýta sér breytilegan opnunartíma leikskólanna í Fjarðabyggð á komandi sumri.
-
7. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu drögum að kynningarefni um gerð umhverfisstefnunnar fyrir íbúa og hagsmunaaðila til að afla umsagna og skapa umræður um hana. Endanlegri afgreiðslu vegna kynningar er vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir efni kynningarinnar.
-
8. Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði
Mál 2010204 Allur ferill málsins
Erindi Meta ehf. um kaup á húsnæði þjónustumiðstöðvar tekið fyrir að nýju en eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn hafa fjallað um erindið. Lögð fram þarfagreining sviðstjóra framkvæmdasviðs um húsnæðisþörf fyrir starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar.
Bæjarráð samþykkir að útfærð verði tillaga að nýbyggingu fyrir starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar á Fáskrúðsfirði í samráði við hafnarstjórn. Jafnframt verði fengið verðmat á núverandi húsnæði miðstöðvarinnar og öðru því húsnæði sem fellur undir starfsemina. Tekið að því loknu fyrir í bæjarráði.
-
9. Mannauðsmál 2020
Mál 2011205 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fer yfir mál tengd mannauðsmálum sveitarfélagsins.
-
10. 311.mál til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, áhættumat, sektir o.fl.),
Mál 2011189 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, áhættumat, sektir o.fl.), 311. mál. Umsögn berist eigi síðar en 9. desember.
Vísað til sviðsstjóra framkvæmdasviðs og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs til umsagnar.
-
11. 323.mál til umsagnar frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof,
Mál 2011190 Allur ferill málsins
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof, 323. mál.
Vísað til sviðstjóra fjölskyldusviðs.
-
12. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
Mál 2002033 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar sambandsins nr. 891 frá 20.nóvember, lögð fram til kynningar.
-
13. Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 29.október
Mál 2010105 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga frá 5. nóvember lögð fram til kynningar.
-
14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 276
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 276 frá 23. nóvember, lögð fram til afgreiðslu.
- 14.1 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
- 14.2 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
- 14.3 Barnaskólinn á Eskifirði1810021
- 14.4 Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði2004112
- 14.5 Strandverðir Íslands2011057
- 14.6 Deiliskipulag Holtahverfis - óveruleg breyting, fækkun- og breyting lóða2011127
- 14.7 760 Hrauntún 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2010151
- 14.8 755 Skólabraut 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2009104
- 14.9 740 Melagata 1 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2011014
- 14.10 750 Hafnargata 27a - Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif2010197
- 14.11 730 Mánagata 3 - byggingarleyfi, nýb. á bílskúr, breyting úti og á lóð2006042
- 14.12 730 Hraun 13 - Umsókn byggingarleyfi, spennistöð2011084
- 14.13 735 Lambeyrarár- Framkvæmdaleyfi, ofanflóðavarnir2011071
- 14.14 Landsskipulagsstefna 2015-20261903130
- 14.15 Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði2007105
- 14.16 275.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis)2011120
- 14.17 Breytingar á mannvirkjalögum 17. mál 151. lþ.2011079
- 14.18 276.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (málsmeðferð o.fl.),2011118
-
15. Hafnarstjórn - 253
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 253 frá 24.nóvember, lögð fram til afgreiðslu.
- 15.1 Verkefni hafnarsjóðs1908100
- 15.2 Fundir með sjávarútvegsfyrirtækjum í Fjarðabyggð2011137
- 15.3 Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði2010204
- 15.4 Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði2007105
- 15.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20202001204
- 15.6 Hafnasambandsþing 20202007025
- 15.7 Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20202010125
- 15.8 Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/20032011077
- 15.9 Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 91911123
-
16. Barnaverndarfundargerðir 2020
Mál 2003129 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 253 frá 24.nóvember, lögð fram til afgreiðslu.
-
17. Stjórnkerfisnefnd
Mál 2011203 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að stjórnkerfisnefnd taki til starfa.