Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 691

7. desember 2020, kl. 08:30 til 11:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 303 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson, Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 7. desember sl. utan liðar 7 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Vinnustaðagreining 2020

    Mál 2012022 Allur ferill málsins

    Kynntar niðurstöður vinnustaðagreiningar sem trúnaðarmál.

  2. 2. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020

    Mál 2001149 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2020 með tilliti til áætlana.

  3. 3. Stafræn þróun sveitarfélaga

    Mál 2011213 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar gögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um stafræna þróun sveitarfélaga og kostnaðarhlutdeild Fjarðabyggðar í starfrænu ráði sambandsins.

    Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu að því gefnu að önnur sveitarfélög taki þátt í því.

  4. 4. Þjóðgarður á miðhálendi

    Mál 2012012 Allur ferill málsins

    Bókun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar vegna áforma um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir með sveitastjórn Bláskógarbyggðar um nauðsyn þess að jafn umfangsmikil aðgerð eins og stofnun miðhálendisþjóðgarðs er verður að vera tekin í sátt við nærsamfélagið og sveitarfélögin sem þar eiga land undir. Hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar stjórnvöld til þess að vanda til verka í þessum efnum og ná áðurnefndri sátt áður en lengra er haldið með mál þetta.

  5. 5. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2021

    Mál 2012013 Allur ferill málsins

    Stefnt er að því að halda Tæknidag fjölskyldunnar í áttunda sinn laugardaginn 2. október 2021 í Íþróttahúsinu í Neskaupstað. Verkmenntaskóli Austurlands óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu og styrk sem nemur leigu og ræstingarkostnaði.

    Bæjarráð samþykkir beiðnina eins og liðin ár.

  6. 6. Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs.

    Mál 2011102 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Héraðsskjalasafns Austfjarða sem haldinn verður 11. desember 2020 kl. 13:00 á Egilsstöðum.

    Bæjarráð felur Gunnari Jónssyni að fara með fullt og ótakmarkað umboð sveitarfélagsins á fundinum.

  7. 7. Kauptilboð í fasteignir í Neskaupstað og á Eskifirði

    Mál 2012011 Allur ferill málsins

    Umræður um tilboð sem borist hefur í átta íbúðir Fjarðabyggðar á Eskifirði og í Neskaupstað.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að fara betur yfir kauptilboðið með tilboðsgjafa og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  8. 8. Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði

    Mál 2010204 Allur ferill málsins

    Lagt fram verðmat löggilds fasteignasala á eigninni að Grímseyri 6 Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir að fasteignin að Grímseyri 6 verði auglýst til sölu. Jafnframt er framkvæmdasviði falið að tryggja óbreytta starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar vegna sölunnar.

  9. 9. Stjórnkerfisnefnd

    Mál 2011203 Allur ferill málsins

    Rætt um stöðu mála.