Bæjarstjórn, fundur 303
17. desember 2020, kl. 16:00 til 16:55, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Sigurður Ólafsson, aðalmaður
- Magni Þór Harðarson, varamaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Bæjarráð - 691
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:01:24
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson, Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 7. desember sl. utan liðar 7 staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Vinnustaðagreining 202020120220:02:20
- 1.2 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
- 1.3 Stafræn þróun sveitarfélaga2011213
- 1.4 Þjóðgarður á miðhálendi2012012
- 1.5 Tæknidagur Fjölskyldunnar 20212012013
- 1.6 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs.2011102
- 1.7 Kauptilboð í fasteignir í Neskaupstað og á Eskifirði2012011
- 1.8 Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði20102040:08:24
- 1.9 Stjórnkerfisnefnd2011203
-
2. Bæjarráð - 692
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:05:08
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 14. desember sl. utan liðar 10 staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Rekstur málaflokka 20202004074
- 2.2 Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 620111730:05:08
- 2.3 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20212009126
- 2.4 Notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórna og nefnda sveitarfélaga2012050
- 2.5 Skipulag fjölskyldusviðs 20202002036
- 2.6 Svæðisskipulagsnefnd2012051
- 2.7 Framlenging akstursamninga 20212012063
- 2.8 Samningur um rekstur FabLab - stafrænnar smiðju - í Fjarðabyggð2012080
- 2.9 Kauptilboð í Grímseyri 6 Fáskrúðsfirði.20120740:08:52
- 2.10 Kauptilboð í fasteignir í Neskaupstað og á Eskifirði20120110:18:40
- 2.11 Kauptilboð í Hrauntún 8 Breiðdalsvík2012067
- 2.12 Kauptilboð í Hrauntún 122011166
- 2.13 Kauptilboð í Hrauntún 12 Breiðdalsvík2012087
- 2.14 Aðalfundur Tónlistarmiðstöðvar2012055
- 2.15 Beiðni um afnot af húsnæði vegna bólusetningar20120920:10:44
- 2.16 Fræðslunefnd - 932012005F
- 2.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2772012003F
- 2.18 Íþrótta- og tómstundanefnd - 822012006F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:30:48
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. desember sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði2010204
- 3.2 Sorpmál í Fjarðabyggð19090990:30:48
- 3.3 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20212009126
- 3.4 740 - Gatnamót Egilsbrautar og Kvíabólsstígs - Ósk um úrbætur2010181
- 3.5 730 Heiðarvegur 14a - Umsókn byggingarleyfi, íþróttahús2011199
- 3.6 730 Hraun 14 - Umsókn um lóð2011171
- 3.7 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður2009211
-
4. Íþrótta- og tómstundanefnd - 82
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:34:04
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 10. desember sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Stefnumótun Íþrótta og tómstundasviðs
- 4.2 Vellíðan ungmenna - þróunarverkefni0:34:04
- 4.3 Vinnustaðagreining íþrótta- og tómstundasvið 2020
- 4.4 Íþróttmaður Fjarðabyggðar 2020
-
5. Fræðslunefnd - 93
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:35:28
Til máls tók Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 9. desember sl. staðfest með 9 atkvæðum.
-
6. Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 6
Mál 2011173 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:38:16
Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka nr. 6
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar viðauka 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020. Viðauki 6 við fjárhagsáætlun ársins 2020 felur í sér breytingar vegna eignakaupa og framkvæmda eignasjóðs, vatnsveitu og fráveitu, akstri vegna sundkennslu, skiptingu námsstyrkja, símenntunarsjóðs og sérstaks framlags vegna faraldurs, auk leiðréttingar á áætlun ársins.
13 m.kr. er bætt við fjárfestingar Eignasjóðs vegna Breiðdalsskóla. Viðskiptastaða Eignasjóðs lækkar sem því nemur gagnvart Aðalsjóð.
10 m.kr. er bætt við fjárfestingar Eignasjóðs vegna Skólavegs. Viðskiptastaða Eignasjóðs lækkar sem því nemur gagnvart Aðalsjóð.
30 m.kr. er bætt við fjárfestingar Eignarhaldsfélagsins Hrauns vegna Leikskóla Lyngholt. Viðskiptastaða Eignarhaldsfélagsins Hrauns lækkar sem því nemur gagnvart Aðalsjóð.
40 m.kr. er bætt við fjárfestingar Vatnsveitu vegna Fáskrúðsfjarðarveitu. Viðskiptastaða Vatnsveitu lækkar sem því nemur gagnvart Aðalsjóð.
31 m.kr. er bætt við fjárfestingar Fráveitu vegna Fáskrúðsfjarðarveitu. Einnig er 11 m. kr. fluttar af viðhaldi til fjárfestingar. Viðskiptastaða Fráveitu lækkar um 20 m.kr. gagnvart Aðalsjóð.
9,2 m.kr. bætt við fjárfestingar Eignasjóðs vegna kaupa á Sæbergi 1 en kaupin eru fjármögnuð með skuldajöfnun. Viðskiptastaða Eignasjóðs lækkar um sömu upphæð gagnvart Aðalsjóði en eigið fé aðalsjóðs lækkar ekki vegna skuldajöfnunar.
3,7 m.kr. er bætt við rekstur fræðslumála í aðalsjóði vegna skólaaksturs. Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs lækkar samsvarandi sem og sjóður og eigið fé.
Millifærslur sem hafa ekki áhrif á rekstrarkostnað, sjóð og eigið fé Aðalsjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar en breytir áætlun málaflokka.
3,2 m.kr. af framlagi til stofnana vegna faraldurs er skipt milli deilda í Aðalsjóði.
2 m.kr. af liðnum Nýir íbúar færast til óvissra útgjalda.
4,6 m.kr. framlag til stofnana vegna námstyrkja er skipt milli deilda í Aðalsjóði.
9,4 m.kr. framlag til stofnana vegna endurmenntunar er skipt milli deilda í Aðalsjóði.
11,2 m.kr. framlag til stofnana af liðnum óviss útgjöld er skipt í samræmi við ákvörðun bæjarráðs.
1,6 m.kr. millifærsla vegna danskennslu milli stofnana í fræðslumálum.
Samandregnar breytingar eru að rekstrarkostnaður í A hluta hækkar um 3,7 m.kr. Rekstrarkostnaður í B hluta lækkar í Fráveitu um um 11 m.kr. Fjárfestingar í Eignasjóðum í A hluta hækka um 62,2 m.kr. Fjárfestingar í B hluta í Fráveitu og Vatnsveitu hækka um 71 m.kr. Eigið fé einstakra stofnana og samstæðunnar í heild breytist til samræmis. Samandregið er sjóðsstaða áætluð í lok árs 2020 um 440 m.kr.
Enginn tók til máls:
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka nr. 6. við fjárhagsáætlun 2020.
-
7. Svæðisskipulagsnefnd
Mál 2012051 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:44:20
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðun starfsreglna.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar staðfestingu Fjarðabyggðar á endurskoðuðum starfsreglum svæðisskipulagsnefndar, sem taka m.a. mið af sameiningu sveitarfélaga á Austurlandi.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir endurskoðaðar starfsreglur svæðisskipulagsnefndar með 9 atkvæðum.
-
8. Stjórnkerfisnefnd
Mál 2011203 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:45:16
Bæjarstjóri mælti fyrir breytingartillögu stjórnkerfisnefndar.
Vísað frá stjórnkerfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar, tillögu um breytingu á stjórnskipulagi fjölskyldusviðs.
Stjórnkerfisnefnd leggur til að verkefnaskiptin á sviðinu taki breytingum í samræmi við tillögur sviðsstjóra fjölskyldusviðs með eftirfarandi útfærslu. Sviðinu verði áfram skipt upp eftir fjórum málaflokkum og yfirmenn þeirra heyra undir sviðsstjóra. Breytingar verði ekki á verksviði fræðslustjóra.
Stjórnandi fjölskylduráðgjafar og barnaverndar fær nýtt starfsheiti og verður stjórnandi barnaverndar og félagsþjónustu. Mun hann samræma starfsemi barnaverndar og félagsþjónustu. Undir hann heyrir fjölskylduráðgjöf, barnavernd, félagsþjónusta, stoðþjónusta eldri borgara og öryrkja ásamt dagvist aldraðra. Hann verður starfsmaður félagsmálanefndar og barnaverndarnefndar.
Félagsmálastjóri fær nýtt starfsheiti og verður stjórnandi forvarnar- og stuðningsmála (við fatlað fólk). Undir hann heyra búsetuþjónusta, stuðningsþjónusta, málefni fatlaðs fólks og forvarnarverkefni ásamt jafnréttis- og mannréttindamálum. Hann verður starfsmaður forvarnarteymis.
Starf íþrótta- og frístundastjóra breytist og verður stjórnandi íþróttahúsa og sundlauga. Undir hann heyrir rekstur íþróttamannvirkja ásamt vinnuskóla. Hann verður starfsmaður íþrótta- og tómstundanefndar.
Ný staða deildarstjóra frístunda og tómstundamála bætist við á sviðinu og heyrir starfið undir stjórnanda íþróttahúsa og sundlauga. Undir hann heyra tómstundamál, félagsstarf aldraðra, frístundastarf barna, æskulýðsmiðstöðvar, skóladagheimili og sumarfrístund. Hann verður starfsmaður ungmennaráðs og öldungaráðs
Nefndin leggur jafnframt til að bæjarstjóra verði falin endanleg útfærsla breytinga sem leiða af ákvörðun þessari þ.m.t. uppfærsla á samþykktum, erindisbréfum nefnda, starfslýsingum starfsmanna, ferlum, reglum og fjárhagsáætlun málaflokka sem um ræðir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu stjórnkerfisnefndar.