Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 93

9. desember 2020, kl. 16:30 til 18:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 692 liður 16

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 93 frá 9.desember, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 303 liður 5

    Til máls tók Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 9. desember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2020-2021

    Mál 2009033 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja skólanámskrár og starfsáætlanir leikskólans Kærabæjar, leikskólans Eyrarvalla og leikskólans Lyngholts, Eskifjarðarskóla, Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Skólastjórar gerðu grein fyrir skólastarfinu og svöruðu spurningum nefndarmanna. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skólanámskrár og starfsáætlanir og þakkar skólastjórum fyrir góða kynningu og skilmerkileg svör.

  2. 2. 278.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um menntastefnu 2020-2030

    Mál 2011139 Allur ferill málsins

    Lögð er fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar un menntastefnu 2020-2030. Fræðslunefnd gerir ekki efnislegar athugasemdir við tillöguna, en áréttar mikilvægi þess að kostnaðargreina þær breytingar sem ráðgerðar eru og sveitarfélög fái stuðning við fjármögnun þeirra.

  3. 3. Vellíðan ungmenna - þróunarverkefni

    Mál 2011210 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri gerði grein fyrir samvinnuverkefni Fjarðabyggðar og Múlaþings sem fer af stað í ársbyrjun 2021 um vellíðan ungmenna í sveitarfélögunum. Verkefnið sem hlotið hefur veglegan styrk til tveggja ára frá Alcoa Foundation miðar að því að bæta líðan ungmenna á aldrinum 13-16 ára með fræðslu, forvörnum og skipulögðu hópastarfi. Fræðslunefnd fagnar framtakinu og óskar ungmennum og starfsfólki grunnskóla og félagsmiðstöðva farsældar í allri vinnu við verkefnið.

  4. 4. Sumarlokun leikskóla í Fjarðabyggð 2021

    Mál 2011115 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað um sumarlokun leikskóla. Í minnisblaðinu er gert ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum og er það í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum og niðurstöðu starfshóps um sumaropnun leikskóla. Þá kemur fram að sumarlokun leikskólanna verði stillt af þannig að sumarlokun leikskólanna fimm spanni í það minnsta tvo mánuði sumarsins. Lagt er til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2021 verði þessi:

    Lyngholt Reyðarfirði 09.06-07.07 báðir dagar meðtaldir

    Eyrarvellir Norðfirði 28.06-23.07 báðir dagar meðtaldir

    Dalborg Eskifirði 07.07-04.08 báðir dagar meðtaldir

    Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 16.07-13.08 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær Fáskrúðsfirði 16.07-13.08 báðir dagar meðtaldir

    Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.

    Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.