Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Sumarlokun leikskóla í Fjarðabyggð 2021

Mál 2011115 Fyrst á dagskrá 9. desember 2020, síðast 17. desember 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 17. desember 2020, frá 0:37:48

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Fræðslunefnd, fundur 93 liður 4

    Fyrir liggur minnisblað um sumarlokun leikskóla. Í minnisblaðinu er gert ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum og er það í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum og niðurstöðu starfshóps um sumaropnun leikskóla. Þá kemur fram að sumarlokun leikskólanna verði stillt af þannig að sumarlokun leikskólanna fimm spanni í það minnsta tvo mánuði sumarsins. Lagt er til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2021 verði þessi:

    Lyngholt Reyðarfirði 09.06-07.07 báðir dagar meðtaldir

    Lesa alla bókunina (71 orð til viðbótar)

    Eyrarvellir Norðfirði 28.06-23.07 báðir dagar meðtaldir

    Dalborg Eskifirði 07.07-04.08 báðir dagar meðtaldir

    Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 16.07-13.08 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær Fáskrúðsfirði 16.07-13.08 báðir dagar meðtaldir

    Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.

    Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

  2. Bæjarráð, fundur 692 liður 16.4

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 93“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 303 liður 5.4

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 93“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 303. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 0:37:48 starfsfólk sem skoðaði þessi mál þannig að það er búið að raða þessu öllu upp og gengur upp gagnvart öllum stofnunum