NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 277
7. desember 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Jón Björn Hákonarson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 692 liður 17
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 277 frá 7. desember, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 303 liður 3
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. desember sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði
Mál 2010204 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar að nýju erindi Meta ehf. um kaup á húsnæði þjónustumiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði eftir umfjöllun hafnarstjórnar og bæjarráðs. Lögð fram þarfagreining sviðstjóra framkvæmdasviðs um húsnæðisþörf fyrir starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti þarfagreiningu fyrir fund bæjarráðs.
Bæjarráð hefur samþykkt að útfærð verði tillaga að nýbyggingu fyrir starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar á Fáskrúðsfirði í samráði við hafnarstjórn. Jafnframt hefur bæjarráð samþykkt að núverandi húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði verði auglýst til sölu og framkvæmdasviði falið að sjá til þess að starfsemi verði óbreytt við söluna og þangað til nýtt húsnæði verður tekið í gagnið líkt og gert var á Norðfirði og stefnt er að á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með bæjarráði að leita þarf lausna með starfsemina á meðan byggingu nýs húss stendur.
-
2. Sorpmál í Fjarðabyggð
Mál 1909099 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju drög að minnisblaði sviðsstjóra framkvæmdasviðs að framtíðarskipulagi sorpmiðstöðvar Fjarðabyggðar, dagsett 2. desember 2020.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útfærslu að útboði verkþátta við sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu og felur sviðstjóra framkvæmdasviðs vinnslu málsins.
-
3. Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2021
Mál 2009126 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað og tillaga fjármálastjóra og verkefnastjóra veitna um breytingu á gjaldskrá vegna hitaveitunnar á Eskifirði á árinu 2021. Breytingin felst í nýrri aðferð við mælingu og verðlagningu á heitu vatni.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að breyta gjaldskrá hitaveitunnar á Eskifirði vegna 2021 þannig að við bætist gjald samkvæmt vatnsmæli fyrir hverja kílóvattastund (kWh) . Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
4. 740 - Gatnamót Egilsbrautar og Kvíabólsstígs - Ósk um úrbætur
Mál 2010181 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf íbúa við Kvíabólsstíg í Neskaupstað er varðar gatnamót Egilsbrautar og Kvíabólsstígs og beiðni um úrbætur. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að vera í sambandi við bréfritara og vinna að úrlausn málsins.
-
5. 730 Heiðarvegur 14a - Umsókn byggingarleyfi, íþróttahús
Mál 2011199 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 26. nóvember 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 1740,9 m2 og 13.919,7 m3 íþróttahús ásamt tengigangi á lóð sveitarfélagsins að Heiðarvegi 14a á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.
-
6. 730 Hraun 14 - Umsókn um lóð
Mál 2011171 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Idea ehf, dagsett 23. nóvember 2020, þar sem sótt er um lóðina við Hraun 14 við Mjóeyrarhöfn undir vélsmiðju.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar umsókninni til umsagnar hafnarstjórnar og Alcoa Fjarðaáls sbr. 2. lið 4. gr. skipulags- og byggingarskilmála deiliskipulags Hrauns 1, Mjóeyrarhöfn.
-
7. Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður
Mál 2009211 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Íbúasamtaka Eskifjarðar, dagsett 30. nóvember 2020, þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvernig vinna eigi deiliskipulagið Eskifjörður, Útkaupstaður. Jafnframt er óskað eftir því að Íbúasamtökin fái að hafa aðkomu að skipulagsgerðinni og að tími til að skila inn hugmyndum í skipulagsgerðina verði lengdur til 1. febrúar 2021.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og bendir jafnframt á að ekki hafa verið teknar ákvarðanir um aðra málsmeðferð en þá sem skipulagslög gera ráð fyrir. Unnið verður nú með þær tillögur sem inn hafa, og munu koma, til undirbúnings skipulagsgerðinni. Svo í framhaldi verði farið í formlegt skipulagsferli og þar verður einnig aðkoma íbúa að ferlinu. Nefndin bendir á að frestur til að skila inn hugmyndum í skipulagsgerðina hafi verið lengdur til 15. desember næstkomandi.