Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 276

23. nóvember 2020, kl. 16:00 til 17:25, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kristjana Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 690 liður 14

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 276 frá 23. nóvember, lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 302 liður 4

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 23. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju drög að Umhverfisstefnu Fjarðabyggðar ásamt drögum að kynningarefni fyrir íbúa og hagsmunaaðila.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti. Endanlegri afgreiðslu vegna kynningar er vísað til bæjarráðs.

  2. 2. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020

    Mál 2001149 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar staða framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2020 með tilliti til áætlana.

  3. 3. Barnaskólinn á Eskifirði

    Mál 1810021 Allur ferill málsins

    Lögð fram fundargerð vegna opnunar tilboða í stoðvegg við gamla Barnaskólann á Eskifirði frá 17. nóvember 2020. Eitt tilboð barst frá MVA uppá 9.912.250 kr.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tilboðið fyrir sitt leyti. Afgreiðslu vegna fjármögnunar er vísað til bæjarráðs þar sem viðauki vegna verksins upp á 6.0 mkr. er í fjárhagsáætlun þessa árs.

  4. 4. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði

    Mál 2004112 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar sjötta og jafnframt síðasta fundargerð fundar starfshóps um uppbyggingu nýs íþróttahúss á Reyðarfirði, dagsett 11. nóvember 2020, ásamt minnisblaði Mannvits um gólfefni og kostnaðaráætlun.

  5. 5. Strandverðir Íslands

    Mál 2011057 Allur ferill málsins

    Lagður fram póstur Veraldarvina, dagsettur 4. nóvember 2020, þar sem óskað er eftir samstarfi við Fjarðabyggð um hreinsun strandlengju sveitarfélagsins ofl. gegn því að fasteignagjöld af húsnæði félagsins á Stöðvarfirði verði felld niður. Verkefnið yrði fjármagnað af aðgerðaráætlun umhverfisráðuneytisins ,Úr viðjum plastsins, og styrkjum frá fyrirtækjum heima og erlendis.´

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið en hefur ekki heimild til að fella niður fasteignagjöld. Erindinu er vísað til afgreiðslu hjá bæjarstjóra.

  6. 6. Deiliskipulag Holtahverfis - óveruleg breyting, fækkun- og breyting lóða

    Mál 2011127 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir fækkun lóða og breytingum á lóðarmörkum. Tillagan var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur bara áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  7. 7. 760 Hrauntún 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2010151 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Fjarðabyggðar, dagsett 22. október 2020, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar sveitarfélagsins að Hrauntúni 4 á Breiðdalsvík. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  8. 8. 755 Skólabraut 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2009104 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Garðars Harðar Vestmann, dagsett 14. september 2020, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Skólabraut 10 á Stöðvarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  9. 9. 740 Melagata 1 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2011014 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Leifs Helga Konráðssonar, dagsett 2. nóvember 2020, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Melagötu 1 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  10. 10. 750 Hafnargata 27a - Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif

    Mál 2010197 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, dagsett 29. október 2020, þar sem sótt er um leyfi til að rífa húsnæði hafnarinnar að 27a á Fáskrúðsfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  11. 11. 730 Mánagata 3 - byggingarleyfi, nýb. á bílskúr, breyting úti og á lóð

    Mál 2006042 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju byggingarleyfisumsókn Gunnars Viðars Þórarinssonar, dagsett 6. júlí 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja um 46 m2 og um 210 m3 bílskúr við hús hans að Mánagötu 3 á Reyðarfirði ásamt um 96 m2 sólpalli.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna byggingaráformin. Grenndarkynning nái til Mánagötu 1, 4 og 5.

  12. 12. 730 Hraun 13 - Umsókn byggingarleyfi, spennistöð

    Mál 2011084 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, dagsett 12. nóvember 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 71,3 m2 og 263,7 m3 spennistöð á lóð hafnarinnar við Hraun 13 á Mjóeyrarhöfn.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  13. 13. 735 Lambeyrarár- Framkvæmdaleyfi, ofanflóðavarnir

    Mál 2011071 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 10. nóvember 2020, þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi vegna ofanflóðavarna í og við farveg Lambeyrarár á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur umhverfis- og skipulagssviði að gefa út framkvæmdaleyfi.

  14. 14. Landsskipulagsstefna 2015-2026

    Mál 1903130 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar póstur Skipulagsstofnunar til samráðsvettvangs um landsskipulagsstefnu þar sem kynntar eru tillögur að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026, ásamt umhverfismati.

  15. 15. Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði

    Mál 2007105 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar póstur Skipulagsstofnunar, dagsettur 6. nóvember 2020, þar sem í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 og 12. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum er óskað eftir umsögn um hvort og á hvaða forsendum breyting á staðsetningu eldissvæða og útsetningaráætlun Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Lögð fram tillaga að umsögn Fjarðabyggðar sem samþykkt hefur verið í bæjarráði og send til Skipulagsstofnunar.

  16. 16. 275.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis)

    Mál 2011120 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar beiðni frá nefndarsviðið Alþingis um umsögn um frumvarp til laga um breytingar á skipulagsslögum nr. 123/2010.

  17. 17. Breytingar á mannvirkjalögum 17. mál 151. lþ.

    Mál 2011079 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna breytinga á mannvirkjalögum.

  18. 18. 276.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (málsmeðferð o.fl.),

    Mál 2011118 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar beiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um umsögn um frumvarp til laga um breytingar lögum um náttúruvernd nr. 60/2013.