Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Deiliskipulag Holtahverfis - óveruleg breyting, fækkun- og breyting lóða

Mál 2011127 Fyrst á dagskrá 23. nóvember 2020, síðast 3. desember 2020. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: LóðirSkipulag

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 276 liður 6

    Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir fækkun lóða og breytingum á lóðarmörkum. Tillagan var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur bara áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  2. Bæjarráð, fundur 690 liður 14.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 276“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 302 liður 9

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags.

    Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir fækkun lóða og breytingum á lóðarmörkum. Tillagan var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur bara áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu um óverulega breytingu deiliskipulags Holtahverfis.

  4. Bæjarstjórn, fundur 302 liður 4.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 276“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is