Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 275

9. nóvember 2020, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kristjana Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Magnús Karl Ásmundsson, varamaður
  • Sindri Már Smárason, varamaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 688 liður 18

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 275 frá 9.nóvember, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 301 liður 4

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 274 og nr. 275 teknar til afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 275 frá 9.nóvember, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmdasvið verkefni 2020

    Mál 2003017 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs, dagsett 3. nóvember 2020, um stöðu götulýsingar í Fjarðabyggð og endurnýjun hennar með led ljósum sbr. bókun nefndarinnar frá 16. október síðastliðnum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra að vinna áfram að endurnýjun götulýsingar í samræmi við minnisblað.

  2. 2. Fyrirspurn vegna Led götulýsinga í Farðabyggð

    Mál 2010203 Allur ferill málsins

    Lögð fram ódagsett fyrirspurn Agnars Bóassonar vegna endurnýjunar á götulýsingu í Fjarðabyggð. Lögð fram samantekt sviðsstóra framkvæmdasviðs vegna fyrirspurnar, dagsett 30. október 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að svara bréfritara.

  3. 3. Selnes 14 Breiðdalsvík

    Mál 2011055 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga RARIK að kaupum á gamla rafstöðvarhúsinu við Selnes 14 á Breiðdalsvík vegna aukinnar notkunar á Selnesinu sem kallar á stækkun á spenni svæðisins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd setur sig ekki á móti sölu á áðurgreindri fasteign og samþykkir fyrir sitt leyti að hún verði sett á söluskrá sveitarfélagsins. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.

  4. 4. Húsnæði þjónustusmiðstöðvar á Fáskrúðsfirði

    Mál 2010204 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Meta ehf þar sem óskað er eftir viðræðum um kaup á húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð hefur vísað erindinu til umsagnar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að áður en hægt er að taka afstöðu til bréfs Meta ehf þurfi að skoða hvort möguleiki sé á að samnýta húsnæði Þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði og hafnarsjóð sveitarfélagsins. Verið er að sameina þá starfsemi á Norðfirði og Reyðarfirði. Nefndin felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að þarfagreina og koma með tillögur að mögulegri samnýtingu húsnæðis á Fáskrúðsfirði, án skertrar þjónustu og leggja fyrir nefndina að nýju eftir fund hafnarstjórnar þar sem málið verður tekið fyrir.

  5. 5. Umbótagöngur í þemaviku Nesskóla

    Mál 2010144 Allur ferill málsins

    Lögð fram samantektarskýrsla vegna úrbótagöngu í Þemaviku Nesskóla 2020 þar sem bænum var skipt upp í fimm svæði með 8-12 nemendur á aldrinum 13-15 ár á hverju svæði. Bent er á ýmislegt sem betur má fara.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar nemendum vel unnið verkefni og vísar skýrslunni til framkvæmdasviðs til skoðunar.

  6. 6. Kvíabólsstígur - ósk um viðgerðir á götu

    Mál 2010182 Allur ferill málsins

    Lagt fram ódagsett erindi íbúa við Kvíabólsstíg í Neskaupstað þar sem óskað er eftir að farið verði í lagfæringar á götunni ásamt veitum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að ræða við bréfritara og vinna málið áfram.

  7. 7. Vatnsflaumur við Kvíabólsstíg í Neskaupstað

    Mál 2010180 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi eigenda Kvíabólsstígs 4 í Neskaupstað er varðar ósk um úrbætur vegna vatnsflaums sem verður í leysingum og miklum rigningum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að ræða við bréfritara og vinna málið áfram.

  8. 8. Steypuveggur við Kvíabólsstíg 4

    Mál 1409192 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi húseignarinnar að Kvíabólsstíg 4 í Neskaupstað er varðar steyptan vegg við lóðina vestanverða, en veggurinn hefur að mati eigenda orðið fyrir skemmdum í gegnum tíðina af völdum snjóruðningstækja og þrýstings af snjó, þegar verið er að ryðja snjó niður götuna.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að ræða við bréfritara og vinna málið áfram.

  9. 9. 740 - Horn Egilsbrautar og Kvíabólsstígs - Ósk um breytingu á deiliskipulagi

    Mál 2010181 Allur ferill málsins

    Lagt fram ódagsett erindi íbúa við Kvíabólstíg 4 í Neskaupstað þar sem bent er á að gatnamót Kvíbólsstígar og Egilsbrautar hafa ekki verið lagfærð í samræmi við deiliskipulag svæðisins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að ræða við bréfritara og vinna málið áfram.

  10. 10. 735 Leirukrókur 4 - Umsókn um lóð

    Mál 2010123 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Eskju hf., dagsett 19. október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Leirukrók 4 á Eskifirði. Lóðinni hefur áður verið úthlutað til Fjarðabyggðar undir móttökustöð á sorpi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að Fjarðabyggð skili inn lóðinni. Nefndin samþykkir jafnframt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að nýju og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Jafnframt er sviðssjtóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að kanna möguleika á nýju iðnaðarsvæði á Eskifirði.

  11. 11. 735 Lambeyrarbraut - Umsókn um lóð

    Mál 2011049 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Maríu Bjarkar Ríkharðsdóttur, dagsett 5. nóvember 2020, þar sem sótt er um lóð á milli Lambeyrarbrautar 1 og 3 á Eskifirði undir einbýlishús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina. Grenndarkynning nái til Lambeyrarbrautar 1, 3, 4, 6, 8 og 10 og Botnabrautar 3. Gert verði ráð fyrir að fyrirkomulag vegna almenningsbílastæða verði óbreytt.

  12. 12. 730 Austurvegur 4 - Umsókn byggingarleyfi, varmadælur

    Mál 2011007 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Lindarbrekkufænkna ehf, dagsett 31. október 2020, þar sem sótt er um leyfi til setja upp tvær varmadælur á suðurhlið húss fyrirtækisins að Austurvegi 4 á Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  13. 13. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju drög að Umhverfisstefnu Fjarðabyggðar eftir umfjöllun allra nefnda. Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 18. september 2020, er varðar umræður nefnda um stefnuna.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að vinna drög að kynningarefni fyrir íbúa og hagsmunaaðila og leggja fyrir nefndina að nýju.