Bæjarráð, fundur 688
16. nóvember 2020, kl. 08:30 til 10:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 301 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 687 og nr. 688 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Sigurður Ólafsson og Jón Björn Hákonarson
Fundargerð bæjarráðs nr. 688 frá 16.nóvember, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
Mál 2005017 Allur ferill málsins
Umræða um tilhögun vinnu milli umræðna við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024. Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu verkefnum og áherslumálum sem unnið er að á milli umræðna.
-
2. Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Dalborg 2020
Mál 2010096 Allur ferill málsins
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði GG þjónustu ehf. í ræstingu við leikskólann Dalborg Eskifirði, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
-
3. Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Lyngholt 2020
Mál 2010095 Allur ferill málsins
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði GG þjónustu ehf. í ræstingu við leikskólann Lyngholt Reyðarfirði, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
-
4. Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Eyrarvelli 2020
Mál 2010094 Allur ferill málsins
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði GG þjónustu ehf. í ræstingu við leikskólann Eyrarvelli í Neskaupstað, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
-
5. Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Kærabæ 2020
Mál 2010092 Allur ferill málsins
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði GG þjónustu ehf. í ræstingu við leikskólann Kærabæ Fáskrúðsfirði, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
-
6. Verðfyrirspurn fyrir bæjarskrifstofur Hafnargotu 2
Mál 2010093 Allur ferill málsins
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Heimili og þrifa - LMOJ ehf. í ræstingu á bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2 Reyðarfirði, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
-
7. Gjaldskrá fasteignagjalda 2021
Mál 2009133 Allur ferill málsins
Endursamþykkja þarf gjaldskrá fasteinagjalda fyrir árið 2021 þar sem villa var í bókun bæjarstjórnar á fundi 5.nóvember sl., um upphæð sorphirðu- og sorpeyðingargjalda. Rétt upphæð sorphreinsunargjalds er 31.136 kr. og sorpeyðingargjalds er 14.777 kr. Gjaldskráin er að öðru leyti rétt. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni að nýju til staðfestingar í bæjarstjórn.
-
8. Íþrótta -og tómstundastyrkur ríkið
Mál 2011009 Allur ferill málsins
Framlögð eru drög að reglum Fjarðabyggðar um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki. Um er að ræða úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja til barna frá tekjulágum heimilum til að auka jöfnuð til íþrótta- og tómstundastarf, sbr. fjáraukalög fyrir árið 2020, sbr. og lög nr. 26/2020, um afmarkaðar og tímabundnar ráðstafanir til að bregðast við áhrifum COVID-19 faraldursins. Félagsmálanefnd hefur samþykkt reglur um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir reglur og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
-
9. Tendrun ljósa á jólatrjám 2020
Mál 2011089 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað upplýsingafulltrúa varðandi tendrun ljósa á jólatrjám í Fjarðabyggð 2020. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði um framkvæmdina.
-
10. Selnes 14 Breiðdalsvík
Mál 2011055 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga RARIK vegna kaupa fyrirtækisins á gamla rafstöðvarhúsinu við Selnes 14 í Breiðdal. Beiðnin er tilkomin vegna aukinnar notkunar á Selnesinu sem kallar á stækkun á spenni svæðisins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd setur sig ekki á móti sölu á áðurgreindri fasteign og hefur samþykkt fyrir sitt leyti að hún verði sett á söluskrá sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að selja RARIK húsið.
-
11. Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur
Mál 2009173 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til bæjarráðs. Framlagðar eru reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur ásamt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Félagsmálanefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs. Bæjarráð staðfestir reglur og vísar þeim til samþykkktar í bæjarstjórn.
-
12. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði
Mál 2004112 Allur ferill málsins
Fundargerð starfshóps frá 11.nóvember lögð fram til kynningar. Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að yfirfara kostnaðaráætlun fyrir næsta fund bæjarráðs. Bæjarstjóra er jafnframt falið að hefja undirbúning að framkvæmdum við grunn hússins.
-
13. Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannsóknir á högun og líðan ungmenna 2021-2024
Mál 2011063 Allur ferill málsins
Fyrir liggja drög að samningi Fjarðabyggðar við Rannsóknir og greiningu um úrvinnslu úr rannsóknum á högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Samningurinn er í stórum dráttum sambærilegur þeim samningi sem gilt hefur undanfarin ár. Markmið úrvinnslunnar er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna í sveitarfélaginu, styrkja faglegan grundvöll stefnumótunar, auka virði samfélagsins gagnvart börnum og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Bæjarráð staðfestir samning.
-
14. 735 Leirukrókur 4 - Umsókn um lóð
Mál 2010123 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Eskju hf., dagsett 19. október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Leirukrók 4 á Eskifirði. Lóðinni hefur áður verið úthlutað til Fjarðabyggðar undir móttökustöð á sorpi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að Fjarðabyggð skili inn lóðinni. Nefndin samþykkti jafnframt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að nýju og vísaði umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Jafnframt var sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að kanna möguleika á nýju iðnaðarsvæði á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóð.
-
15. Austurland - Áfangastaður starfa án staðsetningar
Mál 2011097 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um verkefnið Austurland - áfangastaður starfa án staðsetningar - sem er hluti af aðgerð C.1 til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum, í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024. Austurbrú er að vinna að umsókn í verkefnið fyrir hönd SSA.
-
16. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 28.október 2020
Mál 2010039 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 28.október sl., lögð fram til kynningar.
-
17. Hafnarstjórn - 252
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 252 frá 10. nóvember lögð fram til umfjöllunar.
- 17.1 Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði2010204
- 17.2 Framkvæmdir hafnarsjóðs 20202002025
- 17.3 Málefni Hafnargötu 31 á Fáskrúðsfirði2011054
- 17.4 Erindi frá Eimskip - Gjaldskrá2002081
- 17.5 Hafnasambandsþing 20202007025
- 17.6 Fundir með laxeldisfyrirtækjum í Fjarðabyggð2011056
- 17.7 Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 91911123
- 17.8 Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/20032011077
-
18. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 275
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 275 frá 9.nóvember, lögð fram til umfjöllunar.
- 18.1 Framkvæmdasvið verkefni 20202003017
- 18.2 Fyrirspurn vegna Led götulýsinga í Farðabyggð2010203
- 18.3 Selnes 14 Breiðdalsvík2011055
- 18.4 Húsnæði þjónustusmiðstöðvar á Fáskrúðsfirði2010204
- 18.5 Umbótagöngur í þemaviku Nesskóla2010144
- 18.6 Kvíabólsstígur - ósk um viðgerðir á götu2010182
- 18.7 Vatnsflaumur við Kvíabólsstíg í Neskaupstað2010180
- 18.8 Steypuveggur við Kvíabólsstíg 41409192
- 18.9 740 - Horn Egilsbrautar og Kvíabólsstígs - Ósk um breytingu á deiliskipulagi2010181
- 18.10 735 Leirukrókur 4 - Umsókn um lóð2010123
- 18.11 735 Lambeyrarbraut - Umsókn um lóð2011049
- 18.12 730 Austurvegur 4 - Umsókn byggingarleyfi, varmadælur2011007
- 18.13 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
-
19. Félagsmálanefnd - 138
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 138 frá 10.nóvember, lögð fram til umfjöllunar.
- 19.1 Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur2009173
- 19.2 Íþrótta -og tómstundastyrkur ríkið2005022
- 19.3 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20212009001
- 19.4 Viðbragðsáætlanir COVID2010011F
-
20. Fræðslunefnd - 92
Fundargerð fræðslunefndar nr. 92 frá 11.nóvember, lögð fram til umfjöllunar.
- 20.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2020-20212009033
- 20.2 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
- 20.3 Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur2009173
- 20.4 Ytra mat leikskóla 20212010177
- 20.5 Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannsóknir á högun og líðan ungmenna 2021-20242011063
-
21. Barnaverndarfundargerðir 2020
Mál 2003129 Allur ferill málsins
Fundargerð barnarnverndarnefndar nr. 123 frá 12.nóvember 2020, lögð fram til umfjöllunar.