Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 687

9. nóvember 2020, kl. 08:30 til 09:45, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 301 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 687 og nr. 688 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Sigurður Ólafsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 687 frá 9.nóvember, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Jólasjóður 2020

    Mál 2010141 Allur ferill málsins

    Beiðni Jólasjóðsins um árlegan styrk til sjóðsins. Bæjarráð samþykkir að styrkur til sjóðsins verði með sambærilegum hætti og fyrir síðustu jól.

  2. 2. Kaup á hljóðkerfi fyrir félagsheimili

    Mál 2005104 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað bæjarritara um lokafrágang og uppsetningu á hljóðkerfum í félagsheimilunum Egilsbúð, Valhöll og Skrúði og fjármögnun þeirra.

    Lagt er til að lokið verði frágangi og uppsetningu hljóðkerfanna í félagsheimilunum Skrúði og Valhöll og fjármögnun framkvæmdanna mætt af liðnum óráðstafað 21690 að hámarki 2,0 m.kr. Þá renni fjármagn sem liggur á liðnum nýir íbúar 21550 að fjárhæð 2,0 m.kr. í liðinn óráðstafað 21690, en því fjármagni verður ekki ráðstafað á árinu. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði og vísar málinu til fjármálastjóra til gerðar viðauka.

  3. 3. Kaupsamningur um Sæberg 1 Breiðdalsvík

    Mál 2011010 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að kaupsamningi og afsal um Sæberg 1 í Breiðdal.

    Gamla Kaupfélagið, kt. 450595-2179, selur og afsalar eigninni til Fjarðabyggðar.

  4. 4. 740 Blómsturvellir 38 - Umsókn um lóð

    Mál 2010189 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Hallgríms Axels Tulinius, dagsett 28. október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Blómsturvelli 38 á Norðfirði undir einbýlishús. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  5. 5. 740 Blómsturvellir 41 - Umsókn um lóð

    Mál 2010131 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Ólafar Þorgerðar Þorgeirsdóttur, dagsett 20.október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Blómsturvelli 41 á Norðfirði undir einnar hæðar einbýlishús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  6. 6. Starfshópur um sumaropnun leikskólanna

    Mál 2002082 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað starfshóps um sumaropnun leikskóla en óskað er eftir framlengingu starfstímabils hópsins, þar sem ekki hefur reynst unnt að leggja fram tillögur innan umboðstíma sem var 15.maí sl.

    Bæjarráð samþykkir að framlengja starfstíma hópsins til 30.nóvember nk.

  7. 7. 39. mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar,

    Mál 2011047 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar, 39. mál. Frestur til að veita umsögn er til 19. nóvember. Bæjarráð minnir á fyrri bókanir um málið og vísar þingsályktuninni til bæjarritara til skoðunar.

  8. 8. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020

    Mál 2002033 Allur ferill málsins

    Fundargerð 890.fundar stjórnar sambandsins frá föstudeginum 30. október lögð fram til kynningar.

  9. 9. Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði - erindi íbúasamtaka

    Mál 2011062 Allur ferill málsins

    Erindi Íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar er varðar húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði. Borist hefur fyrirspurn um kaup á húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði. Óskað hefur verið eftir umsögnum frá hafnarstjórn og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vegna málsins, áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Ekki stendur til að skerða þjónustu á Fáskrúðsfirði þrátt fyrir að verið sé að skoða framkomna fyrirspurn. Stefna sveitarfélagsins hefur verið að fækka eignum og samnýta betur, m.a. húsnæði þjónustumiðstöðva og hafna, sbr. það sem gert hefur verið á Norðfirði og Reyðarfirði. Málið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði þegar umsagnir fastanefnda liggja fyrir.

  10. 10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 274

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 274 frá 2.nóvember lögð fram til umfjöllunar.

    1. 10.1 Umhverfisviðurkenning 20202007077
    2. 10.2 Dýraeftirlit 20202001048
    3. 10.3 Refa- og minkaveiðar 20202001232
    4. 10.4 740 Blómsturvellir 41 - Umsókn um lóð2010131
    5. 10.5 740 Blómstgurvellir 38 - Umsókn um lóð2010189
    6. 10.6 735 Strandgata 52 - Beiðni um stækkun byggingarreits2010193
    7. 10.7 735 Strandgata 98B - Umsókn byggingarleyfi, niðurrif2010198
    8. 10.8 735 Högnastaðir að Litlu-Breiðuvík - Framkvæmdaleyfi, rafstrengur og ljósleiðari2010166
    9. 10.9 Endurskoðun hættumats undir leiðgarði/leiðigörðum2010018
    10. 10.10 730 Bakkagerði - umferðaröryggi2010185
    11. 10.11 Veflausn fyrir samskipti við notendur Hitaveitu2010195