Kaup á hljóðkerfi fyrir félagsheimili
Mál 2005104 Fyrst á dagskrá 18. maí 2020, síðast 19. nóvember 2020. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 664 liður 5
Lagt fram minnisblað um kaup á hljóðkerfi fyrir félagsheimilin í Fjarðabyggð þar sem G.V. hljóðkerfi eru að hætta starfsemi. Bæjarráð samþykkir kaup á hjóðkerfi fyrir félagsheimilin Egilsbúð, Valhöll og Skrúð en með þessum kaupum verður sambærilegur búnaður til staðar í félagsheimilunum sem hentar starfsemi þeirra. Vísað til fjármálastjóra til gerðar viðauka. Bæjarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi. Menningarstofu Fjarðabyggðar er auk þess falið að halda utan um búnaðarskrá, hafa almennt eftirlit með að búnaður sé ávallt til staðar, tryggja að umgengni um hann sé góð og að búnaður sé undir engum kringumstæðum fjarlægður úr félagsheimilunum nema með vitund Menningarstofu.
-
Bæjarstjórn, fundur 292 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 664“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 687 liður 2
Framlagt minnisblað bæjarritara um lokafrágang og uppsetningu á hljóðkerfum í félagsheimilunum Egilsbúð, Valhöll og Skrúði og fjármögnun þeirra.
Lagt er til að lokið verði frágangi og uppsetningu hljóðkerfanna í félagsheimilunum Skrúði og Valhöll og fjármögnun framkvæmdanna mætt af liðnum óráðstafað 21690 að hámarki 2,0 m.kr. Þá renni fjármagn sem liggur á liðnum nýir íbúar 21550 að fjárhæð 2,0 m.kr. í liðinn óráðstafað 21690, en því fjármagni verður ekki ráðstafað á árinu. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði og vísar málinu til fjármálastjóra til gerðar viðauka.
-
Bæjarstjórn, fundur 301 liður 1.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 687“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.