NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 274
2. nóvember 2020, kl. 16:00 til 17:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Sindri Már Smárason, varamaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 687 liður 10
Fundargerð eigna, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 274 frá 2.nóvember lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 301 liður 3
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 274 og nr. 275 teknar til afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 274 frá 2.nóvember, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umhverfisviðurkenning 2020
Mál 2007077 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra er varðar umhverfisviðurkenningu Fjarðabyggðar 2020, dagsett 30. október 2020.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur í minnisblaði umhverfisstjóra að tilnefningu til umhverfisverðlauna og vegna fyrirkomulags við athöfn á tíma sóttvarnareglna vegna heimsfaraldursins.
-
2. Dýraeftirlit 2020
Mál 2001048 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra er varðar fyrirkomulag árlegrar ormalyfsgjafar, hunda og katta, í Fjarðabyggð á tíma sóttvarnareglna vegna heimsfaraldursins, dagsett 30. október 2020.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur í minnisblaði umhverfisstjóra og felur henni framkvæmd þeirra.
-
3. Refa- og minkaveiðar 2020
Mál 2001232 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað umhverfisstjóra á niðurstöðum refa- og minkaveiða í Fjarðabyggð veiðitímabilið 2019/20.
-
4. 740 Blómsturvellir 41 - Umsókn um lóð
Mál 2010131 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Ólafar Þorgerðar Þorgeirsdóttur, dagsett 20. október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Blómsturvelli 41 á Norðfirði undir einnar hæðar einbýlishús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
5. 740 Blómstgurvellir 38 - Umsókn um lóð
Mál 2010189 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Hallgríms Axels Tulinius, dagsett 28. október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Blómsturvelli 38 á Norðfirði undir einbýlishús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
6. 735 Strandgata 52 - Beiðni um stækkun byggingarreits
Mál 2010193 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Helga Hafliðasonar fh. Ríkiseigna, dagsett 28. október 2020 þar sem óskað er eftir stækkun byggingarreits Strandgötu 52 á Eskifirði um 2 m til austur svo hægt sé að koma fyrir lokuðu stigahúsi á austurstafn hússins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stækkun byggingarreits enda um óveruleg frávik að ræða sem skerðir ekki hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
-
7. 735 Strandgata 98B - Umsókn byggingarleyfi, niðurrif
Mál 2010198 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 29. október 2020, þar sem sótt er um leyfi til að rífa húsnæði sveitarfélagsins að Strandgötu 98b á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.
-
8. 735 Högnastaðir að Litlu-Breiðuvík - Framkvæmdaleyfi, rafstrengur og ljósleiðari
Mál 2010166 Allur ferill málsins
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn RARIK, dagsett 23. október 2020, þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi vegna lagningar rafstrengs og ljósleiðara frá Högnastöðum, í Helgustaðarhreppi hinum forna, út í Litlu-Breiðuvík. Lagning ljósleiðara er á vegum Mílu og Fjarðabyggðar. Leyfi vegagerðarinnar liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur umhverfis- og skipulagssviði að gefa út framkvæmdaleyfi þegar allar tilskildar umsagnir og leyfi landeiganda liggur fyrir.
-
9. Endurskoðun hættumats undir leiðgarði/leiðigörðum
Mál 2010018 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Veðurstofu Íslands er varðar endurskoðun hættumats undir leiðigarði/leiðigörðum nokkurra sveitarfélaga, dagsett 1. október 2020. Í Fjarðabyggð er um er að ræða vestasta hluta varnamannvirkja tengdum Tröllagili á Norðfirði.
-
10. 730 Bakkagerði - umferðaröryggi
Mál 2010185 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga Heimis Arnfinnssonar að betri umferðarmenningu og lækkun hraða bifreiða í Bakkagerði á Reyðarfirði, dagsett 27. október 2020. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar bréfritara tillöguna sem verður tekin til nánari skoðunar í næstu endurnýjun umferðarsamþykktar Fjarðabyggðar. Nefndin bendir jafnframt á að samkvæmt samþykktinni sé gert ráð fyrir 40 km/klst hámarkshraða í Bakkagerði. Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs er falið að upplýsa lögreglu um erindið.
-
11. Veflausn fyrir samskipti við notendur Hitaveitu
Mál 2010195 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar samningur Fjarðabyggðar og Origo vegna hugbúnaðar þar sem viðskiptavinir Hitaveitu Fjarðabyggðar á Eskifirði geta nálgast viðskipti sín við hitaveituna á vefnum.