Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði - erindi íbúasamtaka

Mál 2011062 Fyrst á dagskrá 9. nóvember 2020, síðast 19. nóvember 2020. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: FáskrúðsfjörðurByggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Bæjarráð, fundur 687 liður 9

    Erindi Íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar er varðar húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði. Borist hefur fyrirspurn um kaup á húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði. Óskað hefur verið eftir umsögnum frá hafnarstjórn og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vegna málsins, áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Ekki stendur til að skerða þjónustu á Fáskrúðsfirði þrátt fyrir að verið sé að skoða framkomna fyrirspurn. Stefna sveitarfélagsins hefur verið að fækka eignum og samnýta betur, m.a. húsnæði þjónustumiðstöðva og hafna, sbr. það sem gert hefur verið á Norðfirði og Reyðarfirði. Málið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði þegar umsagnir fastanefnda liggja fyrir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 301 liður 1.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 687“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is