Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 686

2. nóvember 2020, kl. 08:30 til 11:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 300 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 2. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024

    Mál 2005017 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að tillögu til bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árin 2021 - 2024.

    Drög að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2021 til 2024 vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

    Bókun frá Sjálfstæðisflokki.

    Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir framlagningu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árin 2021 til 2024 til 1. umræðu með þeim fyrirvara að unnið verði áfram í frekari aðhaldsaðgerðum í rekstri á milli umræðna.

  2. 2. Lántaka 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga

    Mál 2001114 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skjöl vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að upphæð 700 m.kr. sem samþykkt var á fundi bæjarráðs 26. október 2020.

  3. 3. Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 5

    Mál 2010202 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 um breytingar vegna endurfjármögnunar.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. Gjaldskrá fasteignagjalda 2021

    Mál 2009133 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá fasteignagjalda 2021 og reglur um afslátt til eldri borgara og örorkulífeyrisþega 2021. Afsláttur er framreiknaður m.v. breytingar á launavísitölu og meðalbreytingu fasteignamats íbúðarhúsnæðis.

    Bæjarráð samþykkir álagningarstuðla fasteignagjalda 2021 og reglur um afslátt til eldri borgara og örorkulífeyrisþega 2021 og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar. Jafnframt vísar bæjarráð vinnu við útfærslu á álagningu vatnsgjalds til ársins 2021.

  5. 5. Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009114 Allur ferill málsins

    Ákvörðun um álagningarstuðul vatnsveitu í gjaldskrá í tengslum við ákvörðun um álagningarstuðul fasteignagjalda.

    Bæjarráð staðfestir að álagningarstuðull vatnsgjalds verði 0,294 % af húsmati

  6. 6. Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009129 Allur ferill málsins

    Ákvörðun um álagningarstuðul fráveitu í gjaldskrá í tengslum við ákvörðun um álagningarstuðul fasteignagjalda.

    Bæjarráð staðfestir að holræsagjald verði 0,275 % af húsmati.

  7. 7. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2021

    Mál 2009113 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2021 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Bæjarráð staðfestir gjaldskrá Fjarðabyggðahafna og taki gjaldskrá gildi 1. janúar 2021.

  8. 8. Húsnæði þjónustusmiðstöðvar á Fáskrúðsfirði

    Mál 2010204 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Meta ehf. þar sem óskað er eftir viðræðum um kaup á húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð vísar erindi til umsagnar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn. Erindið tekið fyrir að nýju í bæjarráði sem finnst áhugavert að skoða erindið en stefnt að því að starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar verði óbreytt á Fáskrúðsfirði.

  9. 9. Akstur á æfingar á Reyðarfirði

    Mál 2010173 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf knattspyrnudeildar Austra, þar sem óskað er aðkomu bæjarins að akstri á æfingar á Reyðarfjörð.

    Bæjarráð vísar erindi til sviðsstjóra fjölskyldusviðs til úrvinnslu og samræmingar á íþróttaakstri.

  10. 10. Markaðsátak og sýnileiki 2020

    Mál 2005044 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa er varðar uppgjör á markaðsátaki Fjarðabyggðar sumarið 2020.

    Vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar.

  11. 11. 209.mál til umsagnar frumvarp til laga um fjarskipti,

    Mál 2010153 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um fjarskipti, 209. mál. Ef veita á umsögn þarf hún að berast eigi síðar en 5.nóvember.

    Vísað til bæjarritara til skoðunar.

  12. 12. 206, mál til umsagnar frumvarp til laga um um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til,

    Mál 2010167 Allur ferill málsins

    Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til, 206. mál. Ef veita á umsögn þarf hún að berast eigi síðar en 13. nóvember.

    Vísað til bæjarritara til skoðunar.

  13. 13. Hafnarstjórn - 251

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 251 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 13.1 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20212009113
    2. 13.2 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    3. 13.3 Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar2010159
    4. 13.4 Smábátahöfn Breiðdalsvík - stækkun2002150
    5. 13.5 Umsókn um undanþágu - Dettifoss2010156
    6. 13.6 Styrkbeiðni - Holan æfingaraðstaða2010091
    7. 13.7 Erindi vegna hafnaraðstöðu á Fáskrúðsfirði2010070
    8. 13.8 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20202001204
    9. 13.9 Þykktarmælingar okt. 2020 - Eskifjarðarhöfn2010170
    10. 13.10 Þykktamælingar okt. 2020 - Norðfjarðarhöfn2010171