Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 685

26. október 2020, kl. 08:30 til 11:45, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 300 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 26. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024

    Mál 2005017 Allur ferill málsins

    Fram haldið vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2021 - 2024.

  2. 2. Lántaka 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga

    Mál 2001114 Allur ferill málsins

    Farið yfir niðurstöðu í útboði Lánasjóðs sveitarfélaga sem fór fram í síðustu viku.

    Bæjarráð samþykkir að tekið verði lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 700 m.kr. og verði það nýtt til endurfjármögnun á fyrri lánum. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021

    Mál 2005020 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar til umfjöllunar bæjarráðs. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2021.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021

    Mál 2005018 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar til umfjöllunar bæjarráðs. Umfjöllun um forgangsröðun og fyrirkomulag einstakra framkvæmda.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2021.

  5. 5. Fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid-19

    Mál 2005111 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um fresti vegna afgreiðslu fjárhagsáætlana sveitarfélaga á komandi vikum. Sækja þarf sérstaklega um heimild til frestunar.

  6. 6. Dalborg, hönnun á viðbyggingu

    Mál 2002039 Allur ferill málsins

    Frá síðasta fundi. Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, minnisblaði starfshóps um viðbyggingu við Leikskólann Dalborg Eskifirði. Farið yfir forsendur viðbyggingarinnar.

  7. 7. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020

    Mál 2002033 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 889 lögð fram til kynningar.

  8. 8. Ágóðahlutagreiðsla 2020

    Mál 2010133 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands um ágóðahlutagreiðsla til Fjarðabyggðar á árinu 2020 úr sameignarsjóði sem nemur 3.658.200 kr.

  9. 9. Boðun XXXV. landsþing sambandsins 18.desember 2020

    Mál 2001166 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um boðun 35. Landsþings sambandsins sem haldið verður með fjarfundaformi föstudaginn 18. desember nk. frá kl. 10:00 - 13:00.

    Bæjarráð vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar kosningu aðal- og varamanna á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  10. 10. Ársfundur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2020

    Mál 2010160 Allur ferill málsins

    Framlagt boð um ársfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem fer fram með fjarfundaformi föstudaginn 6. nóvember kl. 11:00.

    Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.

  11. 11. Tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags

    Mál 2008061 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum sveitarfélagsins um tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags. Þær taka mið af samkomulagi sveitarfélaga og ríkisins og reglum um stuðning við tónlistarnám og jöfnun aðstöðumunar nemenda til tónlistarnáms.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  12. 12. Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2020

    Mál 2010125 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem verður haldinn með fjarfundaformi föstudaginn 30. október nk. kl.11:00. Einnig lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar nr. 59 frá 9.október.

    Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  13. 13. Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009112 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli á árinu 2021.

    Bæjarráð samþykkir að gjaldskrá verði óbreytt á árinu 2021.

  14. 14. Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009118 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fyrir Slökkvilið Fjarðabyggðar á árinu 2021.

    Bæjarráð samþykkir að gjaldskrá hækki 2,4 % um frá 1.janúar 2021.

  15. 15. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2021

    Mál 2009134 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá skipulags- og byggingarmála á árinu 2021.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, að gjaldskrá skipulags- og byggingarmála hækki um 2,4% 1.janúar 2021.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrá og hún taki gildi 1. janúar 2021.

  16. 16. Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 2021

    Mál 2009128 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá gatnagerðargjalda á árinu 2021.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá gatnagerðargjalda vegna 2021, verði líkt og áður í samræmi við ákveðinn hundraðshluta byggingarkostnaður, pr. fermetra vísitöluhúss fjölbýlis, eins og hann er samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987 m.v. byggingarvísitölu fyrir október 2020.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrá taki ofangreindum hækkunum sbr. tillögu nefndarinnar.

  17. 17. Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009126 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar á árinu 2021.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá Hitaveitu hækki um 2,4% 1. janúar 2021.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  18. 18. Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009129 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2021. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá fráveitu hækki um 2,4% 1.janúar 2021.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

    Jafnframt samþykkir bæjarráð að vísa ákvörðun um álagningarstuðul fráveitu í fasteignagjöldum til afgreiðslu álagningarstuðla fasteignagjalda.

  19. 19. Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009114 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá vatnsveitu fyrir árið 2021. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá vatnsveitu hækki um 2,4% 1.janúar 2021.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

    Jafnframt samþykkir bæjarráð að vísa ákvörðun um álagningarstuðul vatnsveitu í fasteignagjöldum til afgreiðslu álagningarstuðla fasteignagjalda.

  20. 20. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2021

    Mál 2009117 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs á árinu 2021.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs hækki um 2,4 % 1. janúar 2021.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  21. 21. Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2021

    Mál 2009130 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fjarvarmaveitna fyrir árið 2021.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá fjarvarmaveitu á Norðfirði hækki um 2,4% 1.janúar 2021, að gjaldskrá vegna fjarvarmaveitu á Reyðarfirði hækki um 10% 1. janúar 2021 þar sem orkuinnkaup vegna hennar hafa hækkað á milli ára. Fjarðabyggð er eini notandi fjarvarmaveitunnar á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  22. 22. Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 2021

    Mál 2009125 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald á árinu 2021. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá hunda- og kattahalds hækki um 2,4% 1.janúar 2021.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  23. 23. Gjaldskrá félagsheimila 2021

    Mál 2009132 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá félagsheimila fyrir árið 2021. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá félagsheimila hækki um 2,4% 1.janúar 2021.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  24. 24. Gjaldskrár íþróttahúsa Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009123 Allur ferill málsins

    Lagðar fram gjaldskrár íþróttahúsa og stórviðburða í íþróttahúsum fyrir árið 2021 en þær hafa verið samþykktar í íþrótta- og tómstundanefnd.

    Nefndin leggur til almenna 2,4% hækkun.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  25. 25. Gjaldskrár líkamsræktarstöðva 2021

    Mál 2009121 Allur ferill málsins

    Lagðar fram gjaldskrár líkamsræktarstöðvanna í Neskaupstað, Eskifirði og Reyðarfirði sem og gjaldskrá líkamsræktarstöðvarinnar í Breiðdal fyrir árið 2021, en þær hafa verið samþykktar í íþrótta- og tómstundanefnd.

    Nefndin leggur til almenna 2,4% hækkun.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  26. 26. Gjaldskrá sundlauga Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009124 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá sundlauga fyrir árið 2021, en hún hefur verið samþykkt í íþrótta- og tómstundanefnd.

    Nefndin leggur til almenna 2,4% hækkun.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  27. 27. Gjaldskrá Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði 2021

    Mál 2009175 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fyrir Skíðamiðstöðina í Oddsskarði fyrir árið 2021 sem samþykkt hefur verið í íþrótta- og tómstundanefnd.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  28. 28. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2021

    Mál 2009135 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðabliki Neskaupstað en félagsmálanefnd hefur lagt til að gjaldskráin hækki um 2,4%.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  29. 29. Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2021 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn

    Mál 2009116 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá vegna greiðslna til stuðningsfjölskyldna á árinu 2021 sem félagsmálanefnd hefur samþykkt.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  30. 30. Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 2021

    Mál 2009131 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá vegna stuðningsþjónustu á árinu 2021 sem félagsmálanefnd hefur samþykkt að hækki um 2,4%.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  31. 31. Gjaldskrá grunnskóla 2021

    Mál 2009127 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fyrir útleigu á grunnskólahúsnæði á árinu 2021 Fræðslunefnd hefur samþykkt að gjaldskrá hækki um 2,4%.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  32. 32. Gjaldskrá skóladagheimila 2021

    Mál 2009120 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fyrir skóladagheimili á árinu 2021 Fræðslunefnd hefur samþykkt að gjaldskrá hækki um 2,4%.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  33. 33. Gjaldskrá leikskóla 2021

    Mál 2009122 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá leikskóla á árinu 2021 en fræðslunefnd hefur samþykkt að gjaldskráin hækki um 2,4% að undanskildum hádegisverði sem hækki ekki.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  34. 34. Gjaldskrá tónlistarskóla 2021

    Mál 2009115 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá fyrir tónlistarskóla á árinu 2021 sem fræðslunefnd hefur lagt til að hækki um 2,4%.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2021.

  35. 35. Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 2021

    Mál 2009119 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd hefur samþykkt að gjaldskrá skólamáltíða verði óbreytt á árinu 2021.

    Bæjarráð staðfestir tillögu fræðslunefndar.

  36. 36. Gjaldskrá safna 2021 til 2022

    Mál 2009137 Allur ferill málsins

    Lögð fram gjaldskrá safna fyrir árið 2022 en menningar- og nýsköpunarnefnd leggur til við bæjarráð að aðgangseyrir að söfnum hækki um 100 kr. í öllum gjaldhópum milli áranna 2021 og 2022.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og hækkun taki gildi 1. janúar 2022.

  37. 37. Gjaldskrá bókasafna 2021

    Mál 2009136 Allur ferill málsins

    Menningar- og nýsköpunarnefnd leggur til við bæjarráð að gjaldskrá bókasafna verði óbreytt á árinu 2021.

    Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar.

  38. 38. Útsvar 2021

    Mál 2010145 Allur ferill málsins

    Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

    Bæjarráð vísar ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars til staðfestingar bæjarstjórnar.

  39. 39. Fræðslunefnd - 91

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 91 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 39.1 Tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags2008061
    2. 39.2 Gjaldskrá skóladagheimila 20212009120
    3. 39.3 Gjaldskrá leikskóla 20212009122
    4. 39.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20212005020