Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Útsvar 2021

Mál 2010145 Fyrst á dagskrá 26. október 2020, síðast 5. nóvember 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Bæjarráð, fundur 685 liður 38

    Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

    Bæjarráð vísar ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 300 liður 21

    Bæjarstjóri mælti fyrir útsvarshlutfalli ársins 2021.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum útsvarshlutfall ársins 2021.

  3. Bæjarstjórn, fundur 300 liður 3.38

    Fundargerðin „Bæjarráð - 685“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is