Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 91

21. október 2020, kl. 16:30 til 17:20, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Þorvarður Sigurbjörnsson, varamaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 685 liður 39

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 91 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 300 liður 8

    Til máls tók Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 21. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags

    Mál 2008061 Allur ferill málsins

    Starfshópur sem fjallaði um tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags hefur skilað drögum að reglum. Þau taka mið af samkomulagi sveitarfélaga og ríkisins og reglum um stuðning við tónlistarnám og jöfnun aðstöðumunar nemenda til tónlistarnáms. Drögin gera ráð fyrir að nemendur með lögheimili í Fjarðabyggð geti sótt um styrk til tónlistarnáms á grunn- og miðstigi í hljóðfæraleik og grunnstigi í söng að uppfylltum þeim skilyrðum að námið sé metið til eininga í framhaldsskólum og námið sé að minnsta kosti hálft nám og stundað við tónlistarskóla sem sveitarfélagið viðurkennir. Fræðslunefnd samþykkir drögin og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.

  2. 2. Gjaldskrá skóladagheimila 2021

    Mál 2009120 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd samþykkir að gjaldskrá fyrir frístund/skóladagheimili 2021 hækki um 2,4% frá og með 1. janúar 2021. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  3. 3. Gjaldskrá leikskóla 2021

    Mál 2009122 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd samþykkir að gjaldskrá fyrir leikskóla 2021 hækki um 2,4% frá og með 1. janúar 2021 að undanskildum hádegisverði sem hækkar ekki. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021

    Mál 2005020 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað með starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar í fræðslumálum fyrir árið 2021. Í minnisblaðinu kemur fram að áætlunin taki mið af fjölskyldustefnu og fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar ásamt samþykktum úthlutunarreglum á tímamagni til leik- og grunnskóla. Fjárhagsáætlun 2021 í fræðslumálum er innan úthlutaðs fjárhagsramma til nefndarinnar. Fræðslunefnd samþykkir starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum og vísar henni til bæjarráðs.