Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 90

7. október 2020, kl. 16:30 til 17:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Ásta Stefanía Svavarsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 683 liður 15

    Fundargerð fræðslunefndar frá 7. október sl. lögð fram til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 299 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 7. október sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá tónlistarskóla 2021

    Mál 2009115 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd samþykkir að gjaldskrá fyrir tónlistarskóla 2021 hækki um 2,4% 1. janúar 2021. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  2. 2. Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 2021

    Mál 2009119 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd samþykkir óbreytta gjaldskrá skólamáltíða. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  3. 3. Gjaldskrá grunnskóla 2021

    Mál 2009127 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd samþykkir að gjaldskrá fyrir útleigu á grunnskólahúsnæði 2021 hækki um 2,4% 1. janúar 2021. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  4. 4. Gjaldskrá leikskóla 2021

    Mál 2009122 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd samþykkir að gjaldskrá fyrir leikskóla 2021 hækki um 2,4% 1. janúar 2021 að undanskildum hádegisverði sem hækkar ekki. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  5. 5. Gjaldskrá skóladagheimila 2021

    Mál 2009120 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd samþykkir að gjaldskrá fyrir frístund/skóladagheimili 2021 hækki um 2,4% 1. janúar 2021. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  6. 6. Leikskólamál

    Mál 2009173 Allur ferill málsins

    Til umræðu voru málefni barna sem náð hafa 12 mánaða aldri en af einhverjum orsökum komast ekki inn í leikskóla í byggðarkjarnanum þar sem barnið á lögheimili. Þegar slík tilfelli hafa komið upp hefur sveitarfélagið boðið börnum upp á leikskólavistun í nálægum byggðarkjörnum og einnig hefur verið auglýst eftir dagforeldrum í viðkomandi byggðarkjarna. Fræðslunefnd hefur skoðað þriðja möguleikann, þ.e. að foreldrum bjóðist tímabundnar foreldragreiðslur, sem falla niður ef barninu býðst vistun í leikskóla eða vistun hjá dagforeldri í þeim byggðarkjarna þar sem barnið á lögheimili. Fyrir liggja drög að breytingum á reglum um dagvistun barna í heimahúsi, þar sem foreldragreiðslum er bætt við sem úrræði. Fræðslunefnd vill jafnframt ítreka mikilvægi þess að börn fái leikskólavistun frá 12 mánaða aldri og því hefur sveitarfélagið unnið að stækkun leikskólahúsnæðis undanfarin ár með góðum árangri, þannig að í flestum tilfellum hafa leikskólarnir geta tekið inn börn um leið og þau verða 12 mánaða. Fræðslunefnd líst vel á drögin og vísar þeim til félagsmálanefndar til frekari umræðu og samþykktar.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021

    Mál 2005020 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri fór yfir niðurstöðu úr vinnu við starfs- og fjárhagáætlun 2021. Vinnu við áætlanir er að mestu lokið, en hún hefur tekið mið af fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar og fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar, ásamt samþykktum úthlutunarreglum á tímamagni til leik- og grunnskóla og rekstri skólanna síðasta skólaár. Fjárhagsáætlun 2021 í fræðslumálum er innan úthlutaðs fjárhagsramma til nefndarinnar. Fræðslunefnd fór yfir starfs- og fjárhagsáætlunina og felur formanni nefndarinnar, fræðslustjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að kynna niðurstöðuna í bæjarráði. Endanlegri afgreiðslu frestað til næsta fundar.