Fræðslunefnd, fundur 89
23. september 2020, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Þorvarður Sigurbjörnsson, varamaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Dagskrá
-
1. Gjaldskrá tónlistarskóla 2021
Mál 2009115 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd tók gjaldskrá fyrir tónlistarskóla 2021 til umræðu. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
2. Gjaldskrá grunnskóla 2021
Mál 2009127 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd tók gjaldskrá fyrir útleigu á húsnæði grunnskóla 2021 til umræðu. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
3. Gjaldskrá skóladagheimila 2021
Mál 2009120 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd tók gjaldskrá fyrir frístundaheimili 2021 til umræðu. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
4. Gjaldskrá leikskóla 2021
Mál 2009122 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd tók gjaldskrá fyrir leikskóla 2021 til umræðu. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
5. Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 2021
Mál 2009119 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd tók gjaldskrá fyrir skólamáltíðir 2021 til umræðu. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
6. Tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags
Mál 2008061 Allur ferill málsins
Starfshópur fræðslunefndar til að vinna að reglum um stuðning við nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags gerði fræðslunefnd grein fyrir stöðu vinnunnar. Lagt fram til kynningar.
-
7. Leikskólamál
Mál 2009173 Allur ferill málsins
Til umræðu voru málefni barna sem náð hafa 12 mánaða aldri en af einhverjum orsökum komast ekki inn í leikskóla í byggðarkjarnanum þar sem barnið á lögheimili. Þegar slík tilfelli hafa komið upp hefur sveitarfélagið boðið börnum upp á leikskólavistun í nálægum byggðarkjörnum og einnig hefur verið auglýst eftir dagforeldrum í viðkomandi byggðarkjarna. Fræðslunefnd vill skoða þriðja möguleikann, þ.e. að foreldrum bjóðist tímabundnar foreldragreiðslur, sem falla niður ef barninu býðst vistun í leikskóla í þeim byggðarkjarna sem barnið á lögheimili. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
8. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
Mál 1904072 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til kynningar tíma- og verkáætlun frá Eflu verkfræðistofu hf. um gerð kostnaðarmats á heildstæðu leiðarneti almenningssamgangna fyrir Fjarðabyggð. Bæjarráð hefur samþykkt tíma- og verkáætlun og felur bæjarstjóra að vinna að málinu áfram. Fræðslunefnd fagnar því að vinna við heildstætt almenningssamgöngukerfi fyrir Fjarðabyggð sé hafin.
-
9. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021
Mál 2005020 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri fór yfir vinnu við fjárhagáætlun 2021. Vinnu við launaáætun er að mestu lokið og tekur hún mið af samþykktum úthlutunarreglum á tímamagni. Fræðslunefnd fjallaði um áherslur í starfsáætlun fyrir árið 2021. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.