Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 251

27. október 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 686 liður 13

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 251 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 300 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 27. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2021

    Mál 2009113 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna lögð fyrir til afgreiðslu hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir drög að gjaldskrá og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.

  2. 2. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar gögn vegna stækkunar Eskifjarðarhafnar, farið yfir stöðu og næstu áfanga framkvæmdarinnar.

  3. 3. Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar

    Mál 2010159 Allur ferill málsins

    Breytingar þarf að gera á deiliskipulagi að Hrauni 1 vegna framtíðarframkvæmda á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í breytingar á deiliskipulagi og felur verkefnastjóra hafna og hafnarstjóra að vinna málið áfram.

  4. 4. Smábátahöfn Breiðdalsvík - stækkun

    Mál 2002150 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda við smíði trébryggju í Breiðsdalsvíkurhöfn.

  5. 5. Umsókn um undanþágu - Dettifoss

    Mál 2010156 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Eimskips um undanþágur frá lóðsskyldu fyrir Ríkharð Sverrisson og Braga Björgvinsson, skipstjóra á Dettifossi. Hafnarstjórn samþykkir að veita umræddum skipstjórum undanþágu frá lóðsskyldu.

  6. 6. Styrkbeiðni - Holan æfingaraðstaða

    Mál 2010091 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni um styrk frá Sturlu Má Helgasyni fyrir hönd Holunnar æfingaraðstöðu. Umbeðinn styrkur fellur ekki undir málefni hafnarstjórnar en beiðninni er vísað til æskulýðs- og íþróttafulltrúa.

  7. 7. Erindi vegna hafnaraðstöðu á Fáskrúðsfirði

    Mál 2010070 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Fiskeldi Austfjarða vegna hafnaraðstöðu á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í dýpkun í smábátahöfninni á Fáskrúðsfirði og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs vinnslu málsins.

  8. 8. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020

    Mál 2001204 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 427 lögð fram til kynningar.

  9. 9. Þykktarmælingar okt. 2020 - Eskifjarðarhöfn

    Mál 2010170 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla um niðurstöður þykktarmælingar sem framkvæmdar voru á stálþili hafskipabryggjunnar á Eskifirði 22.október síðastliðinn.

  10. 10. Þykktamælingar okt. 2020 - Norðfjarðarhöfn

    Mál 2010171 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla um niðurstöður þykktarmælingar sem framkvæmdar voru á stálþili löndunarbryggjunnar á Norðfirði 20. og 21.október síðastliðinn.