Hafnarstjórn, fundur 252
10. nóvember 2020, kl. 16:00 til 17:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, varamaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 688 liður 17
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 252 frá 10. nóvember lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 301 liður 5
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 252 frá 10.nóvember, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði
Mál 2010204 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Meta ehf. þar sem óskað er eftir viðræðum um kaup á húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð vísar erindi til umsagnar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn. Erindið tekið fyrir að nýju í bæjarráði að lokinni yfirferð í nefndum.
Hafnarstjórn telur rétt að skoða erindið frekar og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs í samstarfi við hafnarstjóra að gera þarfagreiningu fyrir starfsemina í óbreyttri mynd á Fáskrúðsfirði og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju áður en bæjarráði er svarað.
-
2. Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020
Mál 2002025 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað um ástand á aðstöðu starfsmanna á Fáskrúðsfirði og tillaga að annarri lausn rædd. Hafnarstjórn samþykkir í ljósi ástands hússins að það verði rifið og horft verði til þarfagreiningar sem verið er að vinna vegna óbreyttrar starfsemi á Fáskrúðsfirði með lausnir á aðstöðu til framtíðar. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs falin rif á húsinu.
-
3. Málefni Hafnargötu 31 á Fáskrúðsfirði
Mál 2011054 Allur ferill málsins
Málefni Hafnargötu 31 á Fáskrúðsfirði rædd. Hafnarstjórn samþykkir að segja upp leigu í húsinu og horft verði til framtíðarnota þess í tengslum við þarfagreiningu. Verkefnastjóra hafna falið að ganga frá málum við núverandi leigjanda.
-
4. Erindi frá Eimskip - Gjaldskrá
Mál 2002081 Allur ferill málsins
Lagt fyrir að nýju sem trúnaðarmál erindi frá Eimskip varðandi gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna. Verkefnastjóra hafna er falið að svara Eimskip í samræmi við minnisblað.
-
5. Hafnasambandsþing 2020
Mál 2007025 Allur ferill málsins
Boðað hefur verið til rafræns hafnarsambandsþings þann 27. nóvember 2020. Fjarðabyggðarhafnir eiga 10 fulltrúa á þinginu. Hafnarstjórn samþykkir að hafnarstjórn mun sækja rafrænt þing ásamt hafnarstjóra, verkefnastjóra hafna, sviðsstjóra framkvæmdasviðs, atvinnu- og þróunarstjóra og slökkviliðsstjóra.
Verkefnastjóra hafna falið að ganga frá skráningu á þingið.
-
6. Fundir með laxeldisfyrirtækjum í Fjarðabyggð
Mál 2011056 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað frá fundum sem fulltrúar Fjarðabyggðarhafna og sveitarfélagsins áttu með fiskeldisfyrirtækjum í Fjarðabyggð.
-
7. Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 9
Mál 1911123 Allur ferill málsins
Á 238.fundi hafnarstjórnar var erindi Hampiðjunnar Ísland ehf. um lengingu á hafnarkanti við Naustahvamm 49 lagt fram. Í bókun fundarins var framkvæmdasviði falið að fara yfir forsendur og kostnað á lausnum til framtíðar og leggja málið fyrir að nýju.
Lögð fram til kynningar kostnaðaráætlun frá Portum verkfræðistofu ehf. um lengingu hafnarkants við Naustahvamm 49 um 50 metra til vesturs. Hafnarstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að funda með Hampiðjunni um málið.
-
8. Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003
Mál 2011077 Allur ferill málsins
Komið er í Samráðsgátt frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr.61/2003. Verkefnastjóra hafna og hafnarstjóra falið að veita umsögn.