Hafnarstjórn, fundur 253
24. nóvember 2020, kl. 16:00 til 17:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 690 liður 15
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 253 frá 24.nóvember, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 24. nóvember sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni hafnarsjóðs
Mál 1908100 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2020 með tilliti til áætlana. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs. Hluti framkvæmda ársins 2019 færðist yfir á árið 2020.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra í samráði við fjármálastjóra að vinna viðauka en tekjur hafnarinnar verða umfram áætlanir einnig.
-
2. Fundir með sjávarútvegsfyrirtækjum í Fjarðabyggð
Mál 2011137 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar innra vinnuskjal frá fundum með sjávarútvegsfyrirtækjum í Fjarðabyggð. Hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna falið umhald um áframhald á þeirri vinnu.
-
3. Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði
Mál 2010204 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs er varðar þarfagreiningu fyrir húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að koma erindi á framfæri við bæjarráð í tengslum við umsögn varðandi málið og jafnframt er málinu vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
4. Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði
Mál 2007105 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn Fjarðabyggðar til Skipulagsstofnunar vegna fyrirhugaðra breytinga á staðsetningu eldissvæða og útsetningaráætlun í Fáskrúðsfirði.
-
5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
Mál 2001204 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 428.fundar Hafnasambands Íslands.
-
6. Hafnasambandsþing 2020
Mál 2007025 Allur ferill málsins
Farið yfir dagskrá Hafnasambandsþings 2020 og tillögur sem fyrir því liggja. Þingið verður haldið næstkomandi föstudag 27.nóvember í fjarfundi.
-
7. Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2020
Mál 2010125 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 60. stjórnarfundar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem er fyrsti fundur stjórnar eftir aðalfund samtakanna.
-
8. Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003
Mál 2011077 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn hafnarstjóra vegna breytinga á hafnarlögum nr. 61/2003.
-
9. Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 9
Mál 1911123 Allur ferill málsins
Hafnarstjóri og sviðstjóri framkvæmdasviðs fóru yfir fund sem þeir áttu með Hampiðjunni.