Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 254

15. desember 2020, kl. 16:00 til 17:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 693 liður 18

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 254 frá 15.desember, lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 304 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 15. desember sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2012071 Allur ferill málsins

    Cargow B.V. hefur óskað eftir landtengingu fyrir skip sín á Mjóeyrarhöfn. Stefán H. Stefánsson, framkvæmdastjóri Cargow B.V. var gestur fundarins og kynnti stefnu fyrirtækisins í rafvæðingarmálum. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að fara yfir frekari forsendur í þessum málum.

  2. 2. Laxar Fiskeldi ehf ný hafnaraðstaða

    Mál 1910162 Allur ferill málsins

    Á 231.fundi hafnarstjórnar var verkefnastjóra hafna falið að skoða frekari forsendur fyrir hafnaraðstöðu fyrir Laxa fiskeldi ehf. við norðarnverðan Reyðarfjörð.

    Lögð eru fram gögn frá Portum verkfræðistofu ehf. Jens Garðar Helgason verður gestur fundarins.

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna frekari útfærslur og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.

  3. 3. Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði

    Mál 2007105 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar breytingar á staðsetningu eldiskvía í Fáskrúðsfirði. Umsögnin krefst viðbragða af hálfu Fjarðabyggðarhafna. Hafnarstjórn leggur áherslu á að ljósabúnaður við fyrirhugaðar eldiskvíar verði staðsettur með tilliti til núverandi vita og telur að öðru leyti hafi þessi breyting ekki áhrif á öryggisþátt vitans. Verkefnastjóra hafna er falið að koma svörum á framfæri.

  4. 4. Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður

    Mál 2012075 Allur ferill málsins

    Á fundi bæjarráðs nr.691 þann 7.desember síðastliðinn var samþykkt að útfærð verði tillaga að nýbyggingu fyrir starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar á Fáskrúðsfirði í samráði við hafnarstjórn. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna kostnaðaráætlun og útfærslur og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.

  5. 5. 730 Hraun 14 - Umsókn um lóð

    Mál 2011171 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Idea ehf, dagsett 23. nóvember 2020, þar sem sótt er um lóðina við Hraun 14 við Mjóeyrarhöfn undir vélsmiðju. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar umsókninni til umsagnar hafnarstjórnar og Alcoa Fjarðaáls sbr. 2. lið 4. gr. skipulags- og byggingarskilmála deiliskipulags Hrauns 1, Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni.

  6. 6. Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2020

    Mál 2011192 Allur ferill málsins

    Tilkynning frá Fiskistofu um greiðslu strandveiðigjalds til hafna lögð fram til kynningar.