Hafnarstjórn, fundur 255
12. janúar 2021, kl. 16:00 til 17:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 696 liður 12
Fundargerð hafnarstjórnar frá 12. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 305 liður 4
Til máls tók Sigurður Ólafsson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 12. janúar sl. staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fóðurprammi sekkur við Gripalda
Mál 2101071 Allur ferill málsins
Fóðurprammi Laxa Fiskeldis ehf. sökk við Gripalda 10.janúar síðastliðinn. Unnið er að því að ná prammanum upp og fór hafnarstjóri yfir stöðu þess verkefnis.
-
2. Laxar Fiskeldi ehf. - Ný hafnaraðstaða
Mál 1910162 Allur ferill málsins
Lagðar fyrir að nýju hugmyndir um hafnaraðstöðu fyrir Laxa Fiskeldi ehf. við norðanverðan Reyðarfjörð. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að skoða frekari forsendur fyrir hafnargerðinni og leggja fyrir að nýju.
-
3. Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður
Mál 2012075 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar teikningar og kostnaðaráætlun fyrir nýja þjónustumiðstöð á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir þessa útfærslu málsins og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.
-
4. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu - Thorship
Mál 2101007 Allur ferill málsins
Erindi frá Thor Shipping dags. 31.desember 2020 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Andrey Gilevskiy, skipstjóra á MV Sif W. Hafnarstjórn tekur erindið fyrir að nýju þegar skipstjóri hefur náð að uppfylla skilyrði um lágmarksfjölda koma.
-
5. Hafnasambandsþing 2020
Mál 2007025 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar þinggerð Hafnasambandsþings 2020, sem haldið var þann 24.nóvember síðastliðinn.
-
6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
Mál 2001204 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar fundargerðir frá 429. og 430. fundi Hafnasambands Íslands.
-
7. Sjávarútvegsráðstefnan 2021
Mál 2012142 Allur ferill málsins
Sjávarútvegsráðstefnan 2021 verður haldin í Hörpu, dagana 11.-12. nóvember, en ráðstefnunni var frestað árið 2020.