Bæjarráð, fundur 696
18. janúar 2021, kl. 08:30 til 11:10, í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 305 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 18. janúar sl. utan liðar 10 staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2020 TRÚNAÐARMÁL
Mál 2004074 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál rekstraryfirlit málaflokka og framkvæmda fyrir janúar - nóvember auk skatttekna og launakostnaðar fyrir janúar - desember.
-
2. Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 7
Mál 2101097 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga fjármálastjóra að viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
3. Jarðsig ofan byggðar á Eskifirði í desember 2020
Mál 2101103 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað Veðurstofu vegna jarðsigs ofan byggðar á Eskifirði í desember 2020. Í minnisblaðinu er m.a. farið yfir hvað þarf að gera til að vakta svæðið og fylgjast betur með hreyfingu jarðlaga á svæðinu.
Bæjarráð telur að ráðast þurfi í gerð bráðabirgða hættumats á því svæði, þar sem jarðsigs varð vart, í samráði við hlutaðeigandi stofnanir. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
-
4. Ofanflóðahættumat fyrir Stöðvarfjörð
Mál 2101115 Allur ferill málsins
Umræða um gerð hættumats fyrir Stöðvarfjörð.
Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir gerð hættumats fyrir Stöðvarfjörð vegna ofanflóða. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir gagnvart Ofanflóðasjóði en hætta af ofanflóðum hefur ekki verið metin fyrir þorpið.
-
5. Þorrablót Reyðfirðinga 2021 - styrkbeiðni
Mál 2101102 Allur ferill málsins
Beiðni formanna Þorrablótsnefndar Reyðarfjarðar um styrk vegna gerðar annáls 2020 í formi myndbands.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um framlag til þorrablótsins þar sem fleiri blót hafa tekið ákvörðun um útsendingu sem fjármögnuð er með frjálsum framlögum þátttakenda. Bendir bæjarráð á þær leiðir til að standa straum af kostnaði.
-
6. Ályktanir aðalfundar Ungmennafélagsins Leiknis 2020
Mál 2008109 Allur ferill málsins
Bréf formanns og ritara ungmennafélagsins Leiknis þar sem óskað er svara við bréfi frá því fyrr í vetur.
Vísað til afgreiðslu sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fjármálastjóra.
-
7. 735 Miðdalur 17 og 19 - Umsókn um lóð
Mál 2012168 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, lóðarumsókn Og synir / Ofurtólið ehf, dagsett 29. desember 2020, þar sem sótt er um lóðirnar við Miðdal 17 og 19 á Eskifirði undir parhús.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
8. Öryggismál og eldvarnir jarðganga
Mál 1704074 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar viðauki 2020 við samning frá árinu 2017 um framlag Vegagerðarinnar til Slökkviliðs Fjarðabyggðar vegna Norðfjarðarganga.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samning.
-
9. 730 Búðarmelur 7a og 7b - Umsókn um lóð
Mál 2012166 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, lóðarumsókn Og synir / Ofurtólið ehf, dagsett 29. desember 2020, þar sem sótt er um lóðirnar við Búðarmel 7a og 7b á Reyðarfirði undir parhús.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
10. 730 Búðarmelur 6e og 6d - Umsókn um lóð
Mál 2012167 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, lóðarumsókn Og synir / Ofurtólið ehf, dagsett 29. desember 2020, þar sem sótt er um lóðirnar við Búðarmel 6e og 6d á Reyðarfirði undir parhús. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
11. 740 Bakkabakki 4 - umsókn um lóð
Mál 2101048 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, lóðarumsókn Axels Ísakssonar, dagsett 7. janúar 2021, þar sem sótt er um lóð undir einbýlishús milli Bakkabakka 2 og 4a á Norðfirði. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
12. Hafnarstjórn - 255
Fundargerð hafnarstjórnar frá 12. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.
- 12.1 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
- 12.2 Laxar Fiskeldi ehf. - Ný hafnaraðstaða1910162
- 12.3 Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður2012075
- 12.4 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu - Thorship2101007
- 12.5 Hafnasambandsþing 20202007025
- 12.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20202001204
- 12.7 Sjávarútvegsráðstefnan 20212012142
-
13. Fræðslunefnd - 94
Fundargerð fræðslunefndar frá 13. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.
- 13.1 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
- 13.2 Skóladagatöl 2021-20222012161
- 13.3 Úthlutunarreglur á tímafjölda til leikskóla1805170
- 13.4 Reglur um úthlutun tímamagns til grunnskóla2101062
- 13.5 Endurskoðaður samningur um Skólaskrifstofu Austurlands bs.2012153
- 13.6 354.mál til umsagnar frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna,2012117
-
14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 279
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 13. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.
- 14.1 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður2009211
- 14.2 Deiliskipulag Eskfjörður-Miðbær, breyting, Lambeyrarbraut, vistgata og ný lóð2101072
- 14.3 730 Búðarmelur 6e og 6d - Umsókn um lóð2012167
- 14.4 730 Búðarmelur 7a og 7b - Umsókn um lóð2012166
- 14.5 735 Miðdalur 19 - Umsókn um lóð2012168
- 14.6 740 Bakkabakki 4 - umsókn um lóð2101048
- 14.7 735 Strrandgata 98b - Umsókn um lóð2101035
- 14.8 730 Mánagata 3 - byggingarleyfi, nýb. á bílskúr, breyting úti og á lóð2006042
- 14.9 Einstefna við Melagötu 4-15 Neskaupstað2012149
- 14.10 Innleiðing hringrásarhagkerfisins2012172
- 14.11 369.mál til umsagnar frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð2012093
- 14.12 Ósk um viðræður vegna kaupa á landi í eigu sveitarfélagsins2101066
-
15. Félagsmálanefnd - 141
Fundargerð félagsmálanefndar frá 12. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.
- 15.1 Lokaskýrsla um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning2012132
- 15.2 355.mál til umsagnar frumvarp til laga um Barna- og fjölskyldustofu,2012118
- 15.3 356.mál til umsagnar frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála,2012120
- 15.4 354.mál til umsagnar frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna,2012117
- 15.5 Félagsmálanefnd 20212101054
-
16. Barnaverndarnefnd 2021
Mál 2101080 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 14. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.