Bæjarráð, fundur 697
25. janúar 2021, kl. 08:30 til 10:40, í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 306 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 25. janúar sl. staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Snjómokstur á Fáskrúðsfirði
Mál 2101155 Allur ferill málsins
Framlagt erindi íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar frá 21. janúar sl. er varðar snjómokstur.
Bæjarráð áréttar að unnið er eftir sömu reglum um snjómokstur og verið hefur undanfarin ár og kynntar eru á heimasíðu sveitarfélagsins. Ekki stendur til að draga úr mokstri í íbúðargötum en unnið er eftir skipulagi sem liggur fyrir á heimasíðu og gerir ráð fyrir að snjómokstri og hálkuvörnum sé forgangsraðað eftir mikilvægi. Bæjarstjóra falið að svara erindi.
-
2. Leiksýning Nesskóla 2021 í Egilsbúð
Mál 2101144 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Nesskóla frá 18. janúar sl. vegna leiksýningar sem fyrirhuguð er í Egilsbúð í mars.
Bæjarráð hvetur aðila sem nýta Egilsbúð til eiga gott samstarf um nýtingu hússins. Erindi vísað til sviðsstjóra fjölskyldusviðs til úrvinnslu.
-
3. Sólvellir flutningur á dagvistun eldri borgara Breiðdal
Mál 2101049 Allur ferill málsins
Ákvörðun um framtíðarnýtingu á húsinu Sólvöllum í Breiðdal sem áður hýsti leikskólann Ástún. Tillaga er um að breyta húsnæði sbr. meðfylgjandi minnisblað til notkunar fyrir dagþjónustu aldraðra í Breiðdal.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í breytingar á húsnæðinu til að það verði nýtt fyrir dagsþjónustu aldraðra. Kostnaði vegna framkvæmdanna vísað til gerðar viðauka.
-
4. Íbúðarhúsnæði í Fjarðabyggð
Mál 2003158 Allur ferill málsins
Lögð fram sem trúnaðarmál drög að samningi við Hrafnshól og tengd fyrirtæki um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Fjarðabyggð.
Umræða um húsnæðismál fram haldið.
-
5. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
Mál 1908022 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað fræðslustjóra er varðar fyrirkomulag sundkennslu við Grunnskóla Reyðarfjarðar.
Bæjarráð samþykkir að sundkennsla fyrir nema Grunnskóla Reyðarfjarðar verði í sundlaug Eskifjarðar vorið 2021.
-
6. 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
Mál 1703117 Allur ferill málsins
Farið yfir aðstæður skíðasvæðisins í Oddsskarði með tilliti til hættumatslína og mögulegra lagfæringa á svæðinu. Framlagt minnisblað Eflu hf. verkfræðistofu um aðgerðir við barnalyftur og skíðaskála vegna snjóflóðahættu.
Bæjarráð vísar til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og íþrótta- og tómstundanefndar að hefja skoðun á skipulagi og aðstæðum í Oddsskarði m.t.t. snjóflóðahættu á svæðinu og nýs skipulags.
-
7. Húsnæðisþing 2021
Mál 2101169 Allur ferill málsins
Lagðar fram upplýsingar um Húsnæðisþing 2021 sem haldið verður í streymi miðvikudaginn 27.janúar nk. frá kl. 13:00 til 15:00. Skráning á netinu.