Bæjarráð, fundur 698
1. febrúar 2021, kl. 08:30 til 10:45, í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 306 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 1. febrúar sl. utan liðar 11 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020
Mál 2001149 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2020 með tilliti til áætlana.
-
2. Skammtímafjármögnun Fjarðabyggðar 2021
Mál 2101116 Allur ferill málsins
Heimild til yfirdráttar að fjárhæð 300 milljónir króna hjá Íslandsbanka rennur út þann 5. febrúar 2021. Lagt er til að bæjarráð samþykki nýjan skammtímalánasamning við Íslandsbanka með allt að 400 milljón króna yfirdráttarheimild og samningurinn gildi til 5. febrúar 2022. Um er að ræða varúðarráðstöfun sem hluta af skammtímafjármögnun sveitarfélagsins.
Bæjarráð heimilar framlengingu á yfirdrætti og hann hækki í 400 m.kr. Endanlegri staðfestingu vísað til bæjarstjórnar.
-
3. Íbúðarhúsnæði í Fjarðabyggð
Mál 2003158 Allur ferill málsins
Umræðu um húsnæðismál og málefni Hrafnhóls fram haldið. Lögð fram endurbætt drög að samningi við félagið.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Forkaupsréttur að Beljanda SU306 nr. 2298
Mál 2101224 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Guðjóns Guðmundssonar skipasala um að Fjarðabyggð nýti ekki forkaupsrétt að Beljanda SU-306 sem er í eigu Gullrúnar ehf. í Breiðdal. Báturinn er seldur án allra veiðiheimilda sama hvaða nafni þær kunna að nefnast.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leiti að nýta ekki forkaupsrétt að skipinu og vísar beiðni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
5. Samningur vegna rekstur tjaldsvæðis á Breiðdalsvík
Mál 2101234 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að samningi vegna reksturs tjaldsvæðisins í Breiðdal. Samningurinn er sambærilegur samningum um útvistun annarra tjaldsvæða Fjarðabyggðar. Gert er ráð fyrir að samningurinn verði til eins árs.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Samningi jafnframt vísað til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd.
-
6. 369.mál til umsagnar frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð
Mál 2012093 Allur ferill málsins
Umsögn sambandsins lögð fram til kynningar.
-
7. 378.mál - Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags)
Mál 2101213 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál. Umsagnarfrestur er til 18. febrúar nk.
Vísað til bæjarstjóra og bæjarritara.
-
8. Niðurrif bragga á Eskifirði - undirskriftalisti
Mál 2101178 Allur ferill málsins
Lagður fram undirskriftalisti er varðar bragga á Eskifirði.
-
9. Hafnarstjórn - 256
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 256 frá 26. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
- 9.1 Erindi vegna áforma um innheimtu vörugjalds2101157
- 9.2 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður2009211
- 9.3 Aðgangskerfi og myndavélar á Mjóeyrarhöfn2101111
- 9.4 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
- 9.5 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
- 9.6 Drangur sekkur í Stöðvarfjarðarhöfn2010176
- 9.7 Umsókn um leitar- og rannsóknarleyfi í Reyðarfirði2004013
- 9.8 418. mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.)2101173
- 9.9 419.mál - Frumvarp til laga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja)2101174
-
10. Íþrótta- og tómstundanefnd - 83
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 83 frá 25. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
- 10.1 Íþróttamaður Fjarðabyggðar
- 10.2 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vor 2021
- 10.3 Oddsskarð 2021
- 10.4 354.mál til umsagnar frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna,
-
11. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 20
Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna nr. 20 frá 25. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
- 11.1 Uppsögn á samningum um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala 2020-2021
- 11.2 Breyting á reglugerð 466/2012 um færnis- og heilsumat vegna dalar- og hjúkrunarrýma
- 11.3 Rekstur hjúkrunarheimila og Covid 19
- 11.4 Rekstur hjúkrunarheimila 2020
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 280 frá 25. janúar, lögð fram til afgreiðslu.