Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 699

8. febrúar 2021, kl. 08:30 til 10:20, í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 307 liður 1

    Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. febrúar sl. utan liðar 1 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Sorpmál í Fjarðabyggð

    Mál 1909099 Allur ferill málsins

    Rúnar Gunnarsson sat ekki þennan lið fundarins.

    Farið yfir niðurstöðu útboðs í sorphirðu og sorpförgun 2021. Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboði í hverjum verkþætti útboðsins.

    Hirðing - Kubbur ehf. - 65.399.619 með VSK

    Gámar - GS Lausnir - 17.447.800 með VSK

    Móttaka - Terra umhverfisþjónusta - 9.281.400 með VSK

    Flutningur - Hringrás ehf. - 3.432.000 með VSK

    Vísað til kynningar i eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

    Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

  2. 2. Ísland ljóstengt: Aukaúthlutun 2020 og 2021 vegna ljósleiðaralagningar

    Mál 2005057 Allur ferill málsins

    Rúnar Gunnarsson kom til fundar undir 2.lið fundargerðar.

    Lögð fram gögn frá samskiptasjóði þar sem kynnt er fyrirkomulag og skilmálar lokaúthlutunar styrkja til uppbyggingar sveitarfélaga á ljósleiðarakerfum í dreifbýli á árinu 2021.

    Bæjarritara falið að leggja fram umsókn og áframhaldandi vinnslu málsins.

  3. 3. Rafrænar undirskriftir í fundargerðum

    Mál 2102033 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um rafrænar undirskriftir fundargerða. Bæjarráð staðfestir tillögur í minnisblaði um að heimila rafrænar undirskriftir fundargerða með vísan til auglýsinga ráðherra á hverjum tíma og felur bæjarritara áframhaldandi vinnslu málsins.

  4. 4. Styrkbeiðni

    Mál 2102037 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf formanns Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar er varðar stuðning við starfsemi félagsins. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

  5. 5. Málefni Skólaskrifstofu Austurlands 2021

    Mál 2102043 Allur ferill málsins

    Umræða um málefni Skólaskrifstofu Austurlands.

  6. 6. 478. mál - Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur)

    Mál 2102042 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál.

    Ef senda á umsögn þarf hún að berast eigi síðar en 18.febrúar nk.

  7. 7. 471. mál - Frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála

    Mál 2102041 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál.

    Ef senda á umsögn þarf hún að berast eigi síðar en 18.febrúar nk.

  8. 8. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2021

    Mál 2102032 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Náttúrustofu frá 15.desember sl. lögð fram til kynningar.

  9. 9. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021

    Mál 2102016 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar fundargerðir 893. og 894. funda stjórnar sambandsins frá 16.desember og 29.janúar sl.

  10. 10. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 34

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 1.febrúar lögð fram til umfjöllunar.

    1. 10.1 Heimildamynd um Eistnaflug2011092
    2. 10.2 Sýningarvél í Egilsbúð2011091
    3. 10.3 Umsókn um styrk vegna leiksýningar í Nesskóla2101138
    4. 10.4 Menningarstyrkir 20212101186
    5. 10.5 Áfangaskýrsla Menningarstofu vegna styrkja á árinu 20202101202
    6. 10.6 735 Strrandgata 98b - Umsókn um lóð2101035