Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 700

22. febrúar 2021, kl. 08:30 til 11:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 308 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 700 og nr. 701 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Rúnar Már Gunnarsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 700 frá 22.febrúar sl., samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Lántaka á árinu 2021

    Mál 2102119 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað fjármálastjóra með tillögu um 200 milljóna kr. lántöku Fjarðabyggðar í mars.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að afla tilboða í lántöku að fjárhæð 200 milljóna kr. og leggja lánasamning fyrir bæjarráð. Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði gegn lántöku.

  2. 2. Kauptilboð í Sólheima 3 Breiðdalsvík

    Mál 2102099 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð í Sólheima 3 í Breiðdal.

    Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra að gera gagntilboð.

  3. 3. Kaup á Bólsvör 1 á Stöðvarfirði til niðurrifs

    Mál 2102123 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að kaupum á fasteign til niðurrifs að Bólsvör 1 á Stöðvarfirði.

    Bæjarráð samþykkir fasteignin að Bólsvör 1 verði keypt og felur bæjarstjóra undirritun og frágang skjala vegna kaupanna.

  4. 4. Samningur um breytingu á rekstri Skólaskrifstofu Austurlands

    Mál 2102078 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samningi um breytingar á byggðasamlagi um Skólaskrifstofu Austurlands þar sem sveitarfélögin samþykkja að taka yfir skólaþjónustu samlagsins.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna áfram að málinu ásamt fjármálastjóra og bæjarritara.

  5. 5. Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga

    Mál 2102089 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar viðhorfskönnun á vegum landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar.

    Vísað til kynningar í nefndum sveitarfélagsins.

  6. 6. Umsókn um stofnframlag til bygginga á hagkvæmu húsnæði frá Bæjartúni íbúðafélagi hses

    Mál 2102091 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn frá Bæjartúni íbúðafélagi hses. um stofnframlag vegna áforma um byggingu hagkvæms leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð á grundvelli laga nr. 52/2016. Stofnframlög sveitarfélaga geta numið 12% af byggingarkostnaði að undangengnu samþykki ríkisins.

    Bæjarráð samþykkir mótttöku umsóknar og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs að undangengnu samþykki á reglum um stofnframlög Fjarðabyggðar.

  7. 7. Reglur um stofnframlög til almennra íbúða skv. lögum nr. 522016

    Mál 2102110 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að reglum um veitingu stofnframlaga í samræmi við lög nr. 52/2016 um almennar íbúðir.

    Bæjarráð samþykkir reglur fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  8. 8. Jafnréttisstefna 2021

    Mál 2102103 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að endurskoðaðri jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2021-2023.

    Bæjarráð samþykkir jafnréttisstefnu fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Jafnframt er stefnunni vísað til kynningar í félagsmálanefnd.

  9. 9. Jafnlaunagreiningar

    Mál 2102129 Allur ferill málsins

    Framlagðar niðurstöður greiningar sem sýna að heildarlaun er 1,3% konum í vil. Hins vegar sýna niðurstöður að óútskýrður launamunur af heildarlaunum er (þá er tekið tilliti til hópa og persónuálags) 0.55% körlum í vil. Jafnlaunamarkmið Fjarðabyggðar er að hafa sem minnstan óútskýraðan mun á launum kynjanna og aldrei meira en 3,5%. Niðurstöður jafnlaunagreiningarnar sýna því að Jafnlaunamarkmiðið stenst.

  10. 10. Jafnlaunakerfi

    Mál 1812054 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað vegna uppfærslna á jafnlaunahandbók í tengslum við uppfærslur á jafnlaunakerfi Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir uppfærðar reglur jafnlaunahandbókar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  11. 11. Jafnlaunastefna endurskoðun 2021

    Mál 2102122 Allur ferill málsins

    Lögð fram endurskoðuð jafnlaunastefna ásamt minnisblaði vegna endurskoðunar.

    Bæjarráð samþykkir stefnun fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  12. 12. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar 2020-2040. Stefnan var auglýst frá 4. desember 2020 til 18. janúar 2021 og frestur til að skila inn athugasemdum síðan lengdur til 28. janúar 2021. Þrjár umsagnir bárust.

    Vísað til áframhaldandi umræðu í bæjarráði.

  13. 13. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá

    Mál 2002092 Allur ferill málsins

    Fulltrúar Ofanflóðasjóðs sátu þennan lið fundarins og fóru yfir stöðu hönnunar ofanflóðavarna við Grjótá á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram með hönnun á grundvelli kynningar. Jafnframt verði farið í undirbúning í tengslum við kynninguna.

  14. 14. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2021

    Mál 2102141 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar samtaka orkusveitarfélaga nr. 44 frá 29.janúar sl., lögð fram til kynningar.

  15. 15. Hafnarstjórn - 257

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 257 frá 16.febrúar, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    2. 15.2 Gjaldtaka vegna fiskeldis2102092
    3. 15.3 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
    4. 15.4 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Brúarfoss2102087
    5. 15.5 Áfangaskýrsla Menningarstofu vegna styrkja á árinu 20202101202
    6. 15.6 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju2101205
    7. 15.7 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20212101212
    8. 15.8 Umsókn um langtímaleigu á lóð við Mjóeyrarhöfn2102107
    9. 15.9 Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður2012075
  16. 16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 282

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 282 frá 15. febrúar, lögð fram til afgareiðslu.

    1. 16.1 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
    2. 16.2 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður2009211
  17. 17. Íþrótta- og tómstundanefnd - 84

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 84 frá 15.febrúar, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 17.1 Fundur íþrótta- og tómstundanefndar með formönnum nokkurra íþróttafélaga í Fjarðabyggð