Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 308

4. mars 2021, kl. 16:00 til 18:05, í Fræðslumolanum Austurbrú. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Sigurður Ólafsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 700

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 700 og nr. 701 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Rúnar Már Gunnarsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 700 frá 22.febrúar sl., samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Lántaka á árinu 20212102119
    2. 1.2 Kauptilboð í Sólheima 3 Breiðdalsvík2102099
    3. 1.3 Kaup á Bólsvör 1 á Stöðvarfirði til niðurrifs2102123
    4. 1.4 Samningur um breytingu á rekstri Skólaskrifstofu Austurlands2102078
    5. 1.5 Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga2102089
    6. 1.6 Umsókn um stofnframlag til bygginga á hagkvæmu húsnæði frá Bæjartúni íbúðafélagi hses2102091
    7. 1.7 Reglur um stofnframlög til almennra íbúða skv. lögum nr. 5220162102110
    8. 1.8 Jafnréttisstefna 20212102103
    9. 1.9 Jafnlaunagreiningar2102129
    10. 1.10 Jafnlaunakerfi1812054
    11. 1.11 Jafnlaunastefna endurskoðun 20212102122
    12. 1.12 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjarðabyggðar1704067
    13. 1.13 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá2002092
    14. 1.14 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 20212102141
    15. 1.15 Hafnarstjórn - 2572102013F
    16. 1.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2822102012F
    17. 1.17 Íþrótta- og tómstundanefnd - 842102010F
  2. 2. Bæjarráð - 701

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 700 og nr. 701 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Rúnar Már Gunnarsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 701 frá 1.mars sl., samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Lántaka á árinu 20212102119
    2. 2.2 Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 20202005144
    3. 2.3 Bréf til bæjarráðs frá Stöðvarfirði - uppbygging og umbætur2102172
    4. 2.4 Ósk um þáttöku í þættinum að Austan2102182
    5. 2.5 Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti 20212102139
    6. 2.6 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20212009129
    7. 2.7 Skólavegur 44 Fáskrúðsfirði2006132
    8. 2.8 Kauptilboð í Sólheima 3 Breiðdalsvík2102099
    9. 2.9 730 Brekkugerði 16 - Umsókn um lóð2102124
    10. 2.10 730 Hraun 14 - Umsókn um lóð2011171
    11. 2.11 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2832102020F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 282

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 282 og nr. 283 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 282 frá 15.febrúar sl., samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
    2. 3.2 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður2009211
  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 283

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 282 og nr. 283 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 283 frá 22.febrúar sl., samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
    2. 4.2 730 Brekkugerði 16 - Umsókn um lóð2102124
    3. 4.3 730 Hraun 14 - Umsókn um lóð2011171
    4. 4.4 735 Strandgata 98b - Umsókn um lóð2101035
    5. 4.5 750 Hafnargata 23 - Umsókn byggingarleyfi, breytt notkun2102117
    6. 4.6 735 Ystidalur 6 til 12 - Umsókn um byggingarleyfi, raðhús2012173
    7. 4.7 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20212009129
    8. 4.8 Beiðni um umsögn vegna ljós- og raflagnar milli Óss í Breiðdal og Núps í Berufirði2102140
    9. 4.9 750 Beiðni um uppsetningu skilta við göngustíga2102109
    10. 4.10 Svæðisskipulagsnefnd 20212102084
  5. 5. Hafnarstjórn - 257

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 257 frá 16.febrúar sl., samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    2. 5.2 Gjaldtaka vegna fiskeldis2102092
    3. 5.3 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
    4. 5.4 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Brúarfoss2102087
    5. 5.5 Áfangaskýrsla Menningarstofu vegna styrkja á árinu 20202101202
    6. 5.6 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju2101205
    7. 5.7 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20212101212
    8. 5.8 Umsókn um langtímaleigu á lóð við Mjóeyrarhöfn2102107
    9. 5.9 Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður2012075
  6. 6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 84

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 84 frá 15.febrúar sl., samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Fundur íþrótta- og tómstundanefndar með formönnum nokkurra íþróttafélaga í Fjarðabyggð
  7. 7. Lántaka á árinu 2021

    Mál 2102119 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri mælti fyrir lántöku hjá Íslandsbanka.

    Lagður fram lánasamningur/skuldabréf við Íslandsbanka að fjárhæð 200 milljónir króna. Skuldabréfið er óverðtryggt til 20 ára, með jöfnum afborgunum, 3,7% breytilegum vöxtum og er uppgreiðanlegt á lánstímanum. Bæjarráð hefur samþykkt lántöku fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir og Rúnar Már Gunnarsson.

    Bókun Sjálfstæðisflokksins.

    Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð greiðir atkvæði gegn frekari lántökum Fjarðabyggðar. Eins og fram kom í bókun flokksins við afgreiðslu núverandi fjárhagsáætlunar þá teljum við afar brýnt að snúið sé frá núverandi stefnu skuldasöfnunar og reksturinn verði sjálfbær að nýju þar sem jafnvægi sé á milli tekna og útgjalda sveitarfélagsins.

    Það eru mikil vonbrigði að þrátt fyrir að loðnuveiðar séu hafnar að nýju, umtalsverðar lántökur á kjörtímabilinu og sölu eigna sveitarfélagsins, að ekki sé hægt að standa við skuldbindingar sveitarfélagsins nema með aukinni lántöku.

    Bókun Framsóknarflokks og Fjarðalistans.

    Meirihluti Fjarðalista og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar furðar sig á bókun og afgreiðslu Sjálfstæðisflokksins og umræðu Miðflokksins við lántöku sveitarfélagsins sem hér er lögð fyrir bæjarstjórn. Ljóst er í fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 var gert ráð fyrir áðurnefndri lántöku í tengslum við fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins á þessu ári. Meirihlutinn taldi að um þær fjárfestingar ríkti pólitísk sátt í bæjarstjórn, óháð stuðningi við fjárhagsáætlun og því hljóta áðurnefndir flokkar að hafa fallið frá stuðningi við þá uppbyggingu sem áætluð er í sveitarfélaginu.

    Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum fyrirliggjandi skuldabréf við Íslandsbanka að höfuðstól kr. 200.000.000, til allt að 20 ára, í samræmi við skilmála skuldabréfsins sem liggur fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er með jöfnum afborgunum. óverðtryggt og á breytilegum vöxtum. Er lánið tekið til að fjármagna fjárfestingu ársins að hluta. Jafnframt er Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 270173-3149, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks greiða atkvæði á móti lántöku og fulltrúi Miðflokksins situr hjá.

  8. 8. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2020

    Mál 2005144 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri mælti fyrir lántöku hjá Ofanflóðasjóði.

    Lagt fram skuldabréf að fjárhæð 33,9 milljónir króna um lántöku hjá Ofanflóðasjóði. Lántakan er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2020 og verður í ársreikningi ársins 2020. Bæjaráð hefur samþykkt lántöku fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum 33,9 milljóna króna lántöku hjá Ofanflóðasjóði.

  9. 9. Reglur um stofnframlög til almennra íbúða skv. lögum nr. 522016

    Mál 2102110 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar drögum að reglum um veitingu stofnframlaga í samræmi við lög nr. 52/2016 um almennar íbúðir.

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um veitingu stofnframlaga í samræmi við lög nr. 52/2016 um almennar íbúðir.

  10. 10. Jafnlaunastefna endurskoðun 2021

    Mál 2102122 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar endurskoðaðri jafnlaunastefnu.

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðaðri stefnu til fyrri umræðu.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa jafnlaunastefnu til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  11. 11. Jafnréttisstefna 2021

    Mál 2102103 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingu bæjarstjórnar drögum að endurskoðaðri jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2021 til 2023.

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðaðri stefnu.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2021 til 2023.

  12. 12. Jafnlaunakerfi

    Mál 1812054 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar uppfærðum reglum jafnlaunahandbókar í tengslum við uppfærslur á jafnlaunakerfi Fjarðabyggðar.

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðun á reglum.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á reglum jafnlaunahandbókar.

  13. 13. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2018 - 2022

    Mál 1806146 Allur ferill málsins

    Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt að hann muni framlengja leyfi sitt frá bæjarstjórn til 1.september 2021. Enginn tók til máls.

  14. 14. Forkaupsréttur að Áka í Brekku

    Mál 2103041 Allur ferill málsins

    Gullrún ehf. í Breiðdal hefur gert kauptilboð í bátinn Einar Hálfdáns ÍS-11, skráningarnúmer 2790. Seljandi Einars er Vébjarnanúpur ehf. Hluti kaupverðs er greiddur með öðrum bát sem Gullrún ehf. á fyrir, nánar tiltekið Áka í Brekku SU-760, skráningarnúmer 2660. Engar aflaheimildir fylgja með Áka í Brekku. Óskað er eftir að Fjarðabyggð falli frá forkaupsrétti að Áka í Brekku.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að falla frá forkaupsrétti.