750 Beiðni um uppsetningu skilta við göngustíga
Mál 2102109 Fyrst á dagskrá 22. febrúar 2021, síðast 4. mars 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Samgöngur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 283 liður 9
Lagt fram bréf Göngufélags Suðurfjarða, dagsett 15. febrúar 2021, sem í samstarfi við sjúkraþjálfara búsetta á Fáskrúðsfirði óska eftir leyfi til að setja upp skilti með æfingum á. Skiltin verða staðsett við bekki sem standa við göngustíg ofan við byggðina. Einnig vill félagið fá að setja upp skilti með teygjuæfingum á brúnni við stífluna sem er ofan við grunnskólann og inn á Kirkubóli þar sem er gönguhringur innan við bæinn.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framtakinu og samþykkir uppsetningu skiltanna í samráði við umhverfis- og skipulagssvið.
-
Bæjarráð, fundur 701 liður 11.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 283“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 308 liður 4.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 283“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.