Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 283

22. febrúar 2021, kl. 16:30 til 18:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Magnús Karl Ásmundsson, varamaður
  • Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
  • Sindri Már Smárason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 701 liður 11

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 283 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 308 liður 4

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 282 og nr. 283 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 283 frá 22.febrúar sl., samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027

    Mál 1810136 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju til yfirferðar drög að greinagerð og uppdráttum vegna endurskoðunar aðalskipulags Fjarðabyggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að kynna tillögu að Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 á vinnslustigi.

  2. 2. 730 Brekkugerði 16 - Umsókn um lóð

    Mál 2102124 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Önnu Steinunnar Árnadóttur, dagsett 17. febrúar 2021, þar sem sótt er um lóðina við Brekkugerði 16 á Reyðarfirði undir einbýlishús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  3. 3. 730 Hraun 14 - Umsókn um lóð

    Mál 2011171 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju lóðarumsókn Idea ehf þar sem sótt er um lóðina við Hraun 14 við Mjóeyrarhöfn undir vélsmiðju. Jákvæð umsögn hafnarstjórnar og Alcoa Fjarðaáls liggja fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  4. 4. 735 Strandgata 98b - Umsókn um lóð

    Mál 2101035 Allur ferill málsins

    Lagt fram að nýju erindi Péturs Karls Kristinssonar, dagsett 5. janúar 2021, þar sem óskað er efir lóð við hlið Strandgötu 98a undir Friðþjófssjóhúss sem nú stendur á lóðinni við Strandgötu 88 á Eskifirði. Lagðar fram jákvæðar umsagnir Sjóminjasafns Austurlands og menningar- og nýsköpunarnefndar vegna flutnings hússins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að hefja endurskoðun á deiliskipulagi Hlíðarenda. Erindinu er vísað til þeirrar vinnu ásamt endurskoðun á safnasvæði.

  5. 5. 750 Hafnargata 23 - Umsókn byggingarleyfi, breytt notkun

    Mál 2102117 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Loðnuvinnslunnar hf. dagsett 17. febrúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og notkun húsnæðis fyrirtækisins að Hafnargötu 23 á Fáskrúðsfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  6. 6. 735 Ystidalur 6 til 12 - Umsókn um byggingarleyfi, raðhús

    Mál 2012173 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Og Synir / Ofurtólið ehf. dagsett 17. febrúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja fjögurra íbúða raðhús á lóðinni við Ystadal 6-12 á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  7. 7. Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2009129 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að breyta gjaldskrá fráveitu vegna ársins 2021 þannig að í 1. gr. segi að álagningarstuðull verði í samræmi við álagningu fasteignagjalda. Breyting hefur ekki hækkun í för með sér. Endanlegri afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  8. 8. Beiðni um umsögn vegna ljós- og raflagnar milli Óss í Breiðdal og Núps í Berufirði

    Mál 2102140 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 16. febrúar 2021, um umsögn vegna ljós- og raflagnar milli Óss í Breiðdal og Núps í Berufirði skv. 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Óskað er eftir umsögn á því hvort og á hvað forsendum fyrirhuguð framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrirhuguð ljós- og raflögn sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

  9. 9. 750 Beiðni um uppsetningu skilta við göngustíga

    Mál 2102109 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Göngufélags Suðurfjarða, dagsett 15. febrúar 2021, sem í samstarfi við sjúkraþjálfara búsetta á Fáskrúðsfirði óska eftir leyfi til að setja upp skilti með æfingum á. Skiltin verða staðsett við bekki sem standa við göngustíg ofan við byggðina. Einnig vill félagið fá að setja upp skilti með teygjuæfingum á brúnni við stífluna sem er ofan við grunnskólann og inn á Kirkubóli þar sem er gönguhringur innan við bæinn.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framtakinu og samþykkir uppsetningu skiltanna í samráði við umhverfis- og skipulagssvið.

  10. 10. Svæðisskipulagsnefnd 2021

    Mál 2102084 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar þrjár fundargerðir svæðisskipulagsnefndar.