Hafnarstjórn, fundur 257
16. febrúar 2021, kl. 16:00 til 17:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 700 liður 15
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 257 frá 16.febrúar, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 308 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 257 frá 16.febrúar sl., samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni hafnarsjóðs
Mál 1908100 Allur ferill málsins
Málefni vöktunar á Mjóeyrarhöfn lögð fyrir að nýju. Hafnarstjórn samþykkir tillögu í minnisblaði um útvíkkun þjónustusamnings um vöktun á hafnarsvæðinu á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að ganga frá samningi.
-
2. Gjaldtaka vegna fiskeldis
Mál 2102092 Allur ferill málsins
Gjaldtaka á meltu frá fiskeldi í Fjarðabyggð. Hafnarstjórn samþykkir að setja meltu inn í gjaldskrá í vöruflokki 2.
-
3. Fóðurprammi sekkur við Gripalda
Mál 2101071 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála vegna fóðurpramma Laxa Fiskeldis ehf. sem sökk við Gripalda.
-
4. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Brúarfoss
Mál 2102087 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Eimskips um undanþágur frá hafnsöguskyldu fyrir Karl Guðmundsson og Jón Inga Þórarinsson, skipstjóra á Brúarfossi. Hafnarstjórn samþykkir að veita umræddum skipstjórum undanþágu frá lóðsskyldu.
-
5. Áfangaskýrsla Menningarstofu vegna styrkja á árinu 2020
Mál 2101202 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar áfangaskýrsla Menningarstofu vegna styrkja á árinu 2020 þar sem gerð er grein fyrir styrkúthlutun hafnarstjórnar til Menningarstofu 2020.
-
6. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju
Mál 2101205 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju Loðnuvinnslunnar.
-
7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021
Mál 2101212 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 431. fundar Hafnasambands Íslands
-
8. Umsókn um langtímaleigu á lóð við Mjóeyrarhöfn
Mál 2102107 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Jens Garðari Helgasyni, framkvæmdastjóra Laxa Fiskeldis ehf. Þar sem óskað er eftir lóð til langtímaleigu á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir að fela starfsmönnum að taka upp viðræður við Laxa Fiskeldi ehf. á grundvelli umræðna á fundinum.
-
9. Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður
Mál 2012075 Allur ferill málsins
Lagt fram tilboð frá Límtré-Vírnet í nýja þjónustumiðstöð á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir tilboð frá Límtré-Vírnet. Jafnframt samþykkir hafnarstjórn að horfa til staðsetningar þjónustumiðstöðvar við Hafnargötu 39, Fáskrúðsfirði.