Hafnarstjórn, fundur 258
2. mars 2021, kl. 16:30 til 18:00, í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Heimir Snær Gylfason, varamaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 703 liður 16
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 258 frá 2. mars, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 309 liður 8
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Sigurður Ólafsson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 2. mars sl., staðfest með 8 atkvæðum.
Rúnar Már Gunnarsson var fjarverandi afgreiðslu.
Dagskrá
-
1. Aðgangskerfi og myndavélar á Mjóeyrarhöfn
Mál 2101111 Allur ferill málsins
Lögregla og Tollgæsla hafa óskað eftir því að fá aðgang að streymi öryggismyndavéla á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn óskar eftir rökstuðningi frá lögreglunni og áliti frá persónuverndarfulltrúa áður en ákvörðun verður tekin í málinu.
-
2. Laxar Fiskeldi ehf. - Ný hafnaraðstaða
Mál 1910162 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað Alta sem gerir grein fyrir þeim leyfum sem þarf að afla ef ákvörðun verður tekin um hafnarframkvæmd við Helgustaði í Reyðarfirði. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að vinna málið áfram.
-
3. Fóðurprammi sekkur við Gripalda
Mál 2101071 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar aðgerðaáætlun Köfunarþjónustunnar ehf. vegna fyrsta og annars áfanga í aðgerðum sem miða að því að ná fóðurpramma Laxa Fiskeldis ehf. af hafsbotni.
-
4. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - stækkun
Mál 2101225 Allur ferill málsins
Umræður um smábátahöfnina á Fáskrúðsfirði. Lagðar fram hugmyndir að nýrri trébryggju. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir kostnaðaráætlun með tilliti til fjárhagsáætlunar og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
5. Stálþil, þekja og grjótvörn við Naustahvamm 49
Mál 2102185 Allur ferill málsins
Lagt fyrir erindi frá Hampiðjunni Ísland ehf. varðandi stálþil, þekju og grjótvörn við húsnæði fyrirtækisins að Naustahvammi 49, Neskaupstað. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir málin og ræða við bréfritara.
-
6. Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðarhafna
Mál 2103022 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað hafnarstjóra vegna markaðs- og kynningarmála Fjarðabyggðarhafna. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna, upplýsinga- og kynningastjóra og atvinnu- og þróunarstjóra að fara yfir minnisblað og móta tillögu um gerð efnis fyrir Fjarðabyggðarhafnir.
-
7. 509. mál - Frumvarp til laga um hafnalög (EES-reglur, gjaldtaka, rafræn vöktun)
Mál 2102154 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um hafnalög (EES-reglur, gjaldtaka, rafræn vöktun), 509. mál. Ef veita á umsögn þarf hún að berast eigi síðar en 9. mars.
https://www.althingi.is/altext/151/s/0855.html
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að fara yfir fyrri umsögn og taka afstöðu til þess hvort verði send inn umsögn.
-
8. Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga
Mál 2102089 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til kynningar í nefndum sveitarfélagsins viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar.