Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 703

15. mars 2021, kl. 08:30 til 11:50, í Fræðslumolanum Austurbrú. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 309 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. mars sl., að undanskildum liðum nr. 2, 3 og 4 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2020 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2103086 Allur ferill málsins

    Endurskoðendurnir Magnús Jónsson og Sigurjón Örn Arnarsson frá KPMG fóru yfir stöðu við vinnslu ársreiknings Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2020. Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 25. mars 2021.

  2. 2. Ársreikningur Hulduhlíðar 2020

    Mál 2102072 Allur ferill málsins

    Ragnar Sigurðsson tók ekki þátt í umræðu og afgreiðslu ársreiknings.

    Lagður fram áritaður ársreikningur hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar sem hefur verið samþykktur af stjórn heimilisins.

    Ársreikningur lagður fram.

  3. 3. Ársreikningur Uppsala 2020

    Mál 2102073 Allur ferill málsins

    Ragnar Sigurðsson tók ekki þátt í umræðu og afgreiðslu ársreiknings.

    Lagður fram áritaður ársreikningur hjúkrunarheimilisins Uppsala sem hefur verið samþykktur af stjórn heimilisins.

    Ársreikningur lagður fram.

  4. 4. Uppsögn á samningum um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala 2020-2021

    Mál 2009147 Allur ferill málsins

    Lögð fram samskipti sveitarfélagsins og heilbrigðisráðuneytisins síðustu vikna vegna uppsagna á samningum um rekstur hjúkrunarheimilanna auk ályktunar Starfsgreinasambands Íslands.

  5. 5. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Vísað frá fyrri fundi bæjarráðs umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar 2020-2040. Stefnan var auglýst frá 4. desember 2020 til 18. janúar 2021 og frestur til að skila inn athugasemdum síðan lengdur til 28. janúar 2021. Þrjár umsagnir bárust.

    Vísað til skoðunar hjá bæjarstjóra og bæjarritara og tekið fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  6. 6. Lokaskýrsla um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning

    Mál 2012132 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs um tildrög, forsendur og niðurstöður tilraunaverkefnis um sérstakan húsnæðisstuðning sem rætt er um í lokaskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá nóvember 2020.

  7. 7. Barnvænt samfélag

    Mál 2006045 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað stjórnanda forvarna og stuðningsmála um stýrihóp barnvænnar Fjarðabyggðar. Fyrir liggur að skipa kjörna fulltrúa og starfsmenn af öllum sviðum stjórnsýslu sveitarfélagsins í stýrihópinn.

    Bæjarráð samþykkir að vera fulltrúi kjörinna fulltrúa Fjarðabyggðar og vísar til sviða að skipa í starfsmenn í stýrihópinn. Horft verði til sviðsstjóra sem fulltrúa í stýrihópinn.

  8. 8. Reglur um fjárhagsaðstoð 2021

    Mál 2102126 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs nýjum reglum um fjárhagsaðstoð.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að gera breytingu á 24. gr. reglnanna í samræmi við umræður á fundinum. Reglunum uppfærðum vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  9. 9. 750 Hafnargata 39 - Umsókn um lóð

    Mál 2102147 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar þar sem sótt er um lóð undir atvinnuhúsnæði á svæðinu austan við Hafnargötu 41 á Fáskrúðsfirði innan reits H2/V1 sem gerir meðal annars ráð fyrir iðnaðar- og athafnastarfsemi.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að Hafnargötu 41 á Fáskrúðsfirði.

  10. 10. Riftun kaupsamnings um Kirkjustíg 7

    Mál 2007051 Allur ferill málsins

    Kaupandi Kirkjustígs 7 á Eskifirði óskar eftir að rifta kaupsamningi um fasteignina. Húsið var keypt til flutnings en kaupandinn er hættur við. Húsið þarf að fjarlægja vegna ofanflóðaframkvæmda við Lambeyrará.

    Bæjarráð samþykkir að taka húsið til sín og rifta kaupsamningi. Framkvæmdasviði falið að rífa húsið sem hluta af ofanflóðaframkvæmdum við Lambeyrará.

  11. 11. Ísland ljóstengt: Aukaúthlutun 2020 og 2021 vegna ljósleiðaralagningar

    Mál 2005057 Allur ferill málsins

    Niðurstöður í b-hluta úthlutunar fjarskiptasjóðs til ljósleiðaralagningar liggur fyrir. Fjarðabyggð býðst að taka 17 milljón kr. tilboði sjóðsins í lagningu ljósleiðara í Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir að taka tilboði fjarskiptasjóðs og felur bæjarstjóra að undirrita samninga um styrkveitingar vegna tilboðanna.

  12. 12. 272.mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaldur)

    Mál 2103025 Allur ferill málsins

    Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, með síðari breytingum (kosningaaldur), 272. mál. Ef senda á umsögn skal hún berast eigi síðar en 23. mars. https://www.althingi.is/altext/151/s/0304.html

    Lagt fram til kynningar.

  13. 13. Aðalfundur Netorku hf 2021 - starfsárið 2020

    Mál 2103087 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar boð á aðalfund Netorku hf. 18. mars 2021.

  14. 14. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021

    Mál 2102016 Allur ferill málsins

    Fundargerð Sambandsins frá 26. febrúar 2021, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 284

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 284 frá 8. mars, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Einstefna við Melagötu 4-15 Neskaupstað2012149
    2. 15.2 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá2002092
    3. 15.3 750 Hafnargata 39 - Umsókn um lóð2102147
    4. 15.4 735 Strandgata 88 - Umsókn um byggingarleyfi, fluttningur2102131
    5. 15.5 735 Bakkastígur 2 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging og endurbætur2102153
    6. 15.6 Ósk um viðræður vegna kaupa á landi í eigu sveitarfélagsins2101066
    7. 15.7 C.9 Byggðaáætlun1903034
    8. 15.8 Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga2102089
    9. 15.9 Múlaþing, Seyðisfjörður, aðalskipulagsbreyting og deiliskipulag ofanflóðavarna2103058
    10. 15.10 Múlaþing, Seyðisfjörður, aðalskipulagsbreyting, lýsing - Vesturvegur 42103060
    11. 15.11 Múlaþing, Djúpivogur, aðalskipulagsbreyting og deiliskipulagstillaga - Innri Gleðivík2103057
    12. 15.12 Múlaþing, Borgarfjörður, aðalskipulagsbreyting - Gamla frystihúsið2103059
  16. 16. Hafnarstjórn - 258

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 258 frá 2. mars, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 16.1 Aðgangskerfi og myndavélar á Mjóeyrarhöfn2101111
    2. 16.2 Laxar Fiskeldi ehf. - Ný hafnaraðstaða1910162
    3. 16.3 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
    4. 16.4 Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - stækkun2101225
    5. 16.5 Stálþil, þekja og grjótvörn við Naustahvamm 492102185
    6. 16.6 Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðarhafna2103022
    7. 16.7 509. mál - Frumvarp til laga um hafnalög (EES-reglur, gjaldtaka, rafræn vöktun)2102154
    8. 16.8 Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga2102089
  17. 17. Félagsmálanefnd - 143

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 143 frá 9. mars, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 17.1 Ársreikningur Hulduhlíðar 20202102072
    2. 17.2 Ársreikningur Uppsala 20202102073
    3. 17.3 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 222102021F
    4. 17.4 452. mál - Frumvarp til laga um málefni innflytjenda (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð)2102160
    5. 17.5 Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga2102089
    6. 17.6 Jafnréttisstefna 20212102103
    7. 17.7 Reglur um geymslu og meðferð lyfja2103019
    8. 17.8 Reglur um fjárhagsaðstoð 20212102126
  18. 18. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 22

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna nr. 22 frá 24. febrúar, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 18.1 Málefni hjúkrunarheimila, samningar við Sjúkratryggingar
    2. 18.2 Uppsögn á samningum um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala 2020-2021
    3. 18.3 Rekstur hjúkrunarheimila 2021
    4. 18.4 Ársreikningur Hulduhlíðar 2020
    5. 18.5 Ársreikningur Uppsala 2020
  19. 19. Barnaverndarnefnd 2021

    Mál 2101080 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 128 frá 11. mars, lögð fram til afgreiðslu.