Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 704

22. mars 2021, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 309 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 22. mars sl., staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2020 TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2103086 Allur ferill málsins

    Endurskoðendurnir Magnús Jónsson og Sigurjón Örn Arnarsson frá KPMG fóru yfir stöðu á vinnslu ársreiknings Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2020. Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 25. mars nk.

  2. 2. Málefni Breiðdals og Stöðvarfjarðar - heimsókn Byggðastofnunar í mars 2021

    Mál 2103125 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni Breiðdals og Stöðvarfjarðar og verkefnið Brothættar byggðir.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að móta í minnisblaði tillögur sem lagðar verða fyrir á næsta fundi bæjarráðs um áherslur og verkefni til stuðnings byggðaþróunar.

  3. 3. Kauptilboð í Sólvelli 10B í Breiðdal

    Mál 2103099 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð í Sólvelli 10b í Breiðdal.

    Bæjarráð samþykkir að taka ekki kauptilboði en fasteignin hefur ekki verið auglýst til sölu.

  4. 4. Kauptilboð í Hrauntún 10 í Breiðdal

    Mál 2103162 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð í Hrauntún 10 í Breiðdal.

    Bæjarráð samþykkir að gert verði gagntilboð í eignina.

  5. 5. Bakhópur húsnæðismála

    Mál 2103169 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um skipan bakhóps sveitarfélaga um húsnæðismál en hann yrði til samráðs um gerð og endurskoðun húsnæðisáætlana og gagnkvæma miðlun upplýsinga um þróun leigumarkaðar fyrir íbúðarhúsnæði.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að vera fulltrúi Fjarðabyggðar í bakhóp um húsnæðismál.

  6. 6. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2021

    Mál 2009113 Allur ferill málsins

    Vísað frá hafnarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs breytingum á gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna. Í gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna hefur verið bætt inn í 2. fl. 9.gr. gjaldtöku vegna meltu frá fiskeldi.

    Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá og þær taki gildi frá og með 1. apríl 2021.

  7. 7. Nefndaskipan Fjarðalista 2018 - 2022

    Mál 1908104 Allur ferill málsins

    Birta Sæmundsdóttir hefur tilkynnt að hún taki fæðingarorlof frá 1. apríl nk. og óskar því eftir leyfi frá störfum varamanns í bæjarstjórn og nefndastörfum, fram til 1. nóvember nk.

    Þorvarður Sigurbjörnsson tekur við sem aðalmaður í fræðslunefnd og Sigurður Borgar Arnaldsson tekur sæti hans sem varamaður í nefndinni. Björgvin Valur tekur við sem varamaður í menningar- og nýsköpunarnefnd.

  8. 8. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Vísað frá fyrri fundi bæjarráðs umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar 2020-2040.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og bæjarritara að vinna frekari breytingar á stefnunni með vísan til umræðna á fundi. Stefnunni vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar 25. mars nk.

  9. 9. Brunavarnaáætlun sveitafélagsins

    Mál 2103130 Allur ferill málsins

    Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á að brunavarnaáætlun sveitarfélagsins er ekki lengur í gildi. Vísað til afgreiðslu slökkviliðsstjóra.

  10. 10. Samningur um rekstur FabLab - stafrænnar smiðju - í Fjarðabyggð

    Mál 2012080 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar samstarfssamningur Fjarðabyggðar, Verkmenntaskóla Austurlands og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um þátttöku í starfsemi starfrænnar smiðju í Fjarðabyggð. Vísað til kynningar í fræðslunefnd.

  11. 11. Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

    Mál 2002151 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar samkomulag Fjarðabyggðar, UNICEF og félagsmálaráðuneytisins um framkvæmd verkefnisins Barnvæn sveitarfélög og innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

  12. 12. Skýrsla Byggðastofnunar um samanburð á orkukostnaði heimila árið 2020

    Mál 2103137 Allur ferill málsins

    Lögð fram til umræðu skýrsla Byggðastofnunar um samanburð á orkukostnaði heimila árið 2020.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Í skýrslunni endurspeglast enn einu sinni sá aðstöðumunur sem íbúar landsins búa við með tilliti til húshitunarkostnaðar. Bæjarráð ítrekar fyrri bókanir sínar til stjórnvalda um nauðsyn þess að komið sé á samræmdu verði á þessum grunninnviði sem nauðsynlegur er öllum íbúum landsins.

  13. 13. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2021

    Mál 2102141 Allur ferill málsins

    Fundargerð 45. fundar stjórnar Samtaka orkusveitafélaga lögð fram til kynningar.

  14. 14. Hafnarstjórn - 259

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 259 frá 16. mars sl., lögð fram til afgreiðslu.

    1. 14.1 Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - stækkun2101225
    2. 14.2 Smábátahöfn Norðfirði - stækkun2103081
    3. 14.3 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20212009113
    4. 14.4 Móttaka á sorpi á hafnarsvæðum2103056
    5. 14.5 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
    6. 14.6 Drangur sekkur í Stöðvarfjarðarhöfn2010176
    7. 14.7 Dýpi við Löndunarbryggju á Norðfirði2103084
    8. 14.8 Hafnafundur 20212103061
    9. 14.9 Umsókn um styrk vegna Franskra daga 20212103055
    10. 14.10 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20212101212
    11. 14.11 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20212103094
  15. 15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 85

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 85 frá 15. mars sl., lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Samtal við íþróttafélög Fjarðabyggðar 2021
  16. 16. Fræðslunefnd - 96

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 96 frá 17. mars sl., lögð fram til afgreiðslu.

    1. 16.1 Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar2005171
    2. 16.2 Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga2102089
    3. 16.3 Skóladagatöl 2021-20222012161
    4. 16.4 kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2021-20222103093