Fræðslunefnd, fundur 96
17. mars 2021, kl. 16:30 til 19:10, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 704 liður 16
Fundargerð fræðslunefndar nr. 96 frá 17. mars sl., lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 309 liður 10
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 17. mars sl., staðfest með 8 atkvæðum.
Rúnar Már Gunnarsson var fjarverandi afgreiðslu.
Dagskrá
-
1. Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar
Mál 2005171 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd heimsótti skólastjórnendur í leikskólanum Kærabæ, Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdals og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Húsnæði og aðstaða voru skoðuð og rætt við skólastjórnendur um starfsemi skólanna. Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum fyrir góðar móttökur og óskar þeim farsældar í þeirra mikilvægu störfum.
-
2. Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga
Mál 2102089 Allur ferill málsins
Fyrir liggur viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar. Lagt fram til kynningar.
-
3. Skóladagatöl 2021-2022
Mál 2012161 Allur ferill málsins
Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð fyrir skólaárið 2021 - 2022. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl.
-
4. kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2021-2022
Mál 2103093 Allur ferill málsins
Farið var yfir tillögu að úthlutun tímamagns til grunnskólanna í Fjarðabyggð sem byggir á reglum um úthlutun tímamagns til grunnskóla. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.