Fræðslunefnd, fundur 95
10. febrúar 2021, kl. 16:30 til 19:05, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 307 liður 5
Til máls tók Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 10. febrúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar
Mál 2005171 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd heimsótti skólastjórnendur í Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar, Grunnskóla Reyðarfjarðar og leikskólanum Lyngholti. Húsnæði og aðstaða voru skoðuð og rætt við skólastjórnendur um starfsemi skólanna. Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum fyrir góðar móttökur og óskar þeim farsældar í þeirra mikilvægu störfum.
-
2. Málefni Skólaskrifstofu Austurlands 2021
Mál 2102043 Allur ferill málsins
Málefni Skólaskrifstofu Austurlands voru tekin til umræðu. Fundur var haldinn í stjórn Skólaskrifstofunnar þriðjudaginn 9. febrúar og þar kom fram að stefnt væri að því að færa skólaþjónustu Skólaskrifstofu Austurlands yfir til sveitarfélaganna frá og með 1. ágúst 2021. Fræðslunefnd leggur ríka áherslu á að unnið verði faglega að yfirfærslu þjónustunnar þannig að skólastarf í Fjarðabyggð hafi áfram aðgang að góðri og öflugri skólaþjónustu.
-
3. Fundaáætlun fræðslunefndar vorið 2021
Mál 2102023 Allur ferill málsins
Fyrir liggja drög að fundaáætlun fræðslunefndar vegna fyrri hluta ársins 2021. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög.
-
4. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
Mál 1908022 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri greindi frá fyrirkomulagi íþróttakennslu hjá nemendum í Grunnskóla Reyðarfjarðar árið 2021. Hafin er bygging á nýju íþróttahúsi og fyrirhuguð er viðgerð á sundlauginni á Reyðarfirði. Ákveðið hefur verið í samráði við ungmennafélagið Val og stjórnendur Grunnskóla Reyðarfjarðar að aka nemendum grunnskólans í sund á Eskifjörð vorið 2021 og kenna skólaíþróttir í núverandi íþróttahúsi þar til nýtt íþróttahús verður tekið í notkun seinni parts árs 2021, en þá verður tekið til við viðgerð á sundlauginni á Reyðarfirði og sund kennt þar á vorönn 2022. Lagt fram til kynningar.
-
5. Bréf til fræðslunefndar
Mál 2102022 Allur ferill málsins
Bréf hefur borist frá foreldri barns á leikskóla, þar sem foreldri þakkar fagleg viðbrögð leikskóla, fræðslunefndar og bæjarstjórnar við styttingu vinnuvikunnar. Fræðslunefnd þakkar bréfritara fyrir bréfið og tekur undir mikilvægi þess að vel sé búið að rekstrarumhverfi leikskólans.
-
6. Fræðslu- og frístundastefna - aðgerðaáætlun
Mál 1805207 Allur ferill málsins
Farið var yfir gildandi aðgerðaráætlun sem nær til áranna 2020-2022.