Fræðslunefnd, fundur 97
7. apríl 2021, kl. 16:30 til 17:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Þorvarður Sigurbjörnsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 707 liður 14
Fundargerð fræðslunefndar nr. 97 frá 7. apríl, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 311 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 7. apríl sl. utan dagskrárliðar 2 staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samningur um rekstur FabLab - stafrænnar smiðju - í Fjarðabyggð
Mál 2012080 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar í fræðslunefnd samstarfssamningur Fjarðabyggðar, Verkmenntaskóla Austurlands og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um þátttöku í starfsemi starfrænnar smiðju í Fjarðabyggð. Fræðslustjóra falið að kynna samninginn fyrir skólastórnendum grunnskólanna í Fjarðabyggð.
-
2. Erindi frá rafíþróttadeild Austra
Mál 2103220 Allur ferill málsins
Borist hefur bréf frá Rafíþróttadeild Austra, þar sem fræðslunefnd er boðið í heimsókn til að skoða aðstöðu deildarinnar og jafnframt óskar deildin eftir aðstoð við að koma á fót fræðslu og námskeiðum. Fræðslunefnd fagnar góðu boði og felur fræðslustjóra að vera í sambandi við deildina varðandi fræðslu- og námskeiðahald.
-
3. Styrktarsjóður EBÍ 2021
Mál 2103217 Allur ferill málsins
Styrktarsjóður EBÍ hefur opnað fyrir umsóknir í sjóðinn. Sjóðurinn styrkir sérstök framfaraverkefni hjá sveitarfélögum. Heildarstyrkupphæð er 5 milljónir króna. Hvert sveitarfélag getur sent inn eina umsókn. Fræðslustjóra falið í samráði við sviðsstjóra hjá Fjarðabyggð að skoða styrkumsóknir.
-
4. Framlenging um eitt ár á samningi um skólamáltíðir í grunnskóla 2017-2020
Mál 2104001 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar árs framlenging á samningi um skólamáltíðir í grunnskóla 2017-2020.