Bæjarráð, fundur 707
12. apríl 2021, kl. 08:30 til 11:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 311 liður 3
Fundargerðir bæjaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 12. apríl sl. staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Mat á vátryggingarsamningi við TM
Mál 2012113 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um vátryggingar Fjarðabyggðar og gildandi tryggingarsamning við Tryggingarmiðstöðina. Lagt er til að farið verði í heildrænt mat á tryggingum sveitarfélagsins og þörf þess fyrir tryggingar ásamt áhættumati í rekstri. Þá verði gerð úttekt á forvörnum og markmiðum sem sveitarfélagið þarf að setja starfseminni til að draga úr slysum og tjónum.
Bæjarráð samþykkir að fara í mat á tryggingum sveitarfélagsins og undirbúa útboð sem fer fram síðar á árinu.
-
2. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
Mál 1904072 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að skýrslu Verkfræðistofunnar Eflu um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til kynningar í nefndum sveitarfélagsins sem aðkomu hafa að málinu. Bæjarstjóra falið að vinna frekar að útfærslu á kerfinu. Málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði að aflokinni umfjöllun nefnda.
-
3. Umsókn um stofnframlag til bygginga á hagkvæmu húsnæði frá Bæjartúni íbúðafélagi hses
Mál 2102091 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn Bæjartúns íbúðafélags hses. um byggingu fimm íbúða í sveitarfélaginu, ásamt yfirferð vinnuhóps um umsóknina og útreikning stofnframlags.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leiti umsókn Bæjartúns íbúðafélags hses um stofnframlag sem felur í sér fjárhæð 20,7 m.kr. Hluta framlags sem fellur til á árinu 2021 vísað til gerðar viðauka þegar fyrir liggur niðurstaða úthlutunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Samstarfsverkefni um uppbyggingu á íbúðum á Fáskrúðsfirði
Mál 2104025 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samstarfsyfirlýsingu milli Fjarðabyggðar, Bríetar Leigufélags og Og Sona/Ofurtólsins ehf. um byggingu íbúða á Fáskrúðsfirði. Framlag bæjarins felst í að tryggja lóðir til verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir yfirlýsingu og felur bæjarstjóra undirritun hennar.
-
5. Stytting vinnuvikunnar, betri vinnutími
Mál 2008127 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað og kynntar niðurstöður vinnu við styttingu vinnuvikunnar fyrir vaktavinnufólk á fjölskyldusviði. Bæjarráð samþykkir tillögur sviðsstjóra sem fram koma í minnisblaði og felur honum útfærslur.
-
6. Ísland ljóstengt 2020 og 2021 vegna ljósleiðaralagningar
Mál 2005057 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga í minnisblaði um að hafin verði hönnun og vinna við útboð á lagningu ljósleiðara á suðurströnd Reyðarfjarðar og norðurströnd Fáskrúðsfjarðar.
Bæjarráð samþykkir að verkin verði sett í útboð og hönnun.
-
7. Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt Breiðdalur
Mál 1807140 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um framkvæmdir við lagningu ljósleiðara í Breiðdal. Framkvæmdum við lagningu ljósleiðara og tengingu í húseignir er lokið. Lagt er til að ljósleiðarakerfið verði boðið til sölu. Bæjarráð samþykkir að ljósleiðarkerfið í Breiðdal verði boðið til sölu í gegnum útboð.
-
8. Framlenging um eitt ár á samningi um skólamáltíðir í grunnskóla 2017-2020
Mál 2104001 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar samningur við Fjarðaveitingar um skólamáltíðir sem hefur verið framlengdur um eitt ár.
-
9. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lagðar fram niðurstöður úr opnun tilboða í verkið "Eskifjörður, steypt staurabryggja - Holplötur" sem fór fram 31. mars. Steypustöðin - Loftorka og Einingarverksmiðjan buðu í verkið og var Steypustöðin - Loftorku lægstbjóðandi. Hafnarstjórn hefur þegar staðfest með tölvupósti að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda.
-
10. Friðlýsing Gerpissvæðisins
Mál 2001205 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um stöðu friðlýsingar Gerpissvæðisins ásamt drögum að skilmálum friðlýsingar fyrir landslagsverndun hluta svæðisins.
Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og að drög skilmála fari í kynningarferli á vegum Umhverfisstofnunar.
-
11. Frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnastig o.fl.), 622. mál.
Mál 2103203 Allur ferill málsins
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnastig o.fl.), 622. mál. https://www.althingi.is/altext/151/s/1077.html
Vísað til skoðunar almannavarnanefndar.
-
12. Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf - 20.apríl 2021
Mál 2104022 Allur ferill málsins
Framlagt boð um aðalfund Sparisjóðs Austurlands 20. apríl 2021.
Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
-
13. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021
Mál 2102016 Allur ferill málsins
Fundargerð 896. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar.
-
14. Fræðslunefnd - 97
Fundargerð fræðslunefndar nr. 97 frá 7. apríl, lögð fram til afgreiðslu.
- 14.1 Samningur um rekstur FabLab - stafrænnar smiðju - í Fjarðabyggð2012080
- 14.2 Erindi frá rafíþróttadeild Austra2103220
- 14.3 Styrktarsjóður EBÍ 20212103217
- 14.4 Framlenging um eitt ár á samningi um skólamáltíðir í grunnskóla 2017-20202104001
-
15. Hafnarstjórn - 260
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 260 frá 30. mars, lögð fram til afgreiðslu.
- 15.1 Leyfi til umskipunar olíu - Vermland2103001
- 15.2 Aðgangskerfi og myndavélar á Mjóeyrarhöfn2101111
- 15.3 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
- 15.4 Grjótvarnir í Fjarðabyggð2103194
- 15.5 Tryggingar Fjarðabyggðarhafna2103200
- 15.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20212101212
- 15.7 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20202103183
- 15.8 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20212103094
- 15.9 Aðalfundur Cruise Iceland 20212103193
-
16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 86
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 86 frá 29. mars, lögð fram til afgreiðslu.
- 16.1 Breyting á reglugerð um kjör íþróttamann ársins 2021
- 16.2 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
- 16.3 Úthlutun íþróttastyrkja 2021
- 16.4 Umsók um íþróttastyrk
- 16.5 Umsók um íþróttastyrk
- 16.6 Umsók um íþróttastyrk
- 16.7 Umsók um íþróttastyrk
- 16.8 Umsók um íþróttastyrk
- 16.9 Umsók um íþróttastyrk
- 16.10 Umsók um íþróttastyrk
- 16.11 Umsók um íþróttastyrk
- 16.12 Umsók um íþróttastyrk
- 16.13 Umsók um íþróttastyrk
- 16.14 Umsók um íþróttastyrk
- 16.15 Umsók um íþróttastyrk
- 16.16 Umsók um íþróttastyrk
- 16.17 Umsók um íþróttastyrk
- 16.18 Umsók um íþróttastyrk
- 16.19 Umsók um íþróttastyrk
- 16.20 Umsók um íþróttastyrk